Gátt - 2009, Blaðsíða 92
92
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
inu, hafa snúist um að fá mat á stöðu sinni og skoða mögu-
leika á því að fara í meira nám. Í upphafi tala þátttakendur
gjarnan um að þeir hafi ekkert gert, „bara unnið í banka“ í
mörg ár og ekkert menntað sig. Einnig tala þeir um að hafa
byrjað í framhaldsskóla og svo hætt, t.d. vegna barneigna
eða fengið góða vinnu og hafa svo aldrei komið sér af stað
aftur. Margir þeirra stefna á að fara í meira nám og flestir
hafa talað um að byrja á að styrkja stöðu sína með því að taka
framhaldsskólaáfanga og halda svo áfram. Sumum finnst þeir
verði að ljúka stúdentsprófi því að það hafi alltaf verið mark-
miðið. Í ferlinu hefur þetta viðhorf breyst hjá nokkrum þar
sem þeir átta sig betur á hversu fjölbreyttir námsmöguleikar
eru fyrir hendi í framhaldsskólum, háskólum og hjá ýmsum
fræðsluaðilum í dag og ekki lengur endilega þörf á að hafa
hefðbundið stúdents próf.
Náms- og starfsráðgjafar hafa aðstoðað þátttakendur
við að finna nám og leiðir sem vekja áhuga þeirra og margir
hafa haldið áfram námi. Á vorönn 2008 voru til að mynda
fimm konur frá sama fjármálafyrirtæki. Fjórar héldu áfram
í nám, t.d. í framhaldsskólum, með það fyrir augum að
styrkja stöðuna betur og undirbúa sig fyrir frekara nám. Ein
fór með möppuna sína í Menntaskólann við Hamrahlíð og
fékk 14 einingar metnar og hóf þar fullt nám í öldungadeild í
kjölfarið. Önnur fór með pappírana sína fyrir matsnefnd Fjöl-
brautarskólans í Breiðholti til að vita hvað hún ætti eftir í
stúdentinn og fór líka á fullt að safna þeim einingum sem
á vantaði.
Nokkrir þátttakendur hafa átt þess kost að hefja nám í
Háskólanum í Reykjavík, t.d. með því að bæta við sig nokkrum
einingum í stærðfræði og ensku. Tveir hafa nú þegar byrjað
í námi í viðskiptafræði í HR og gengur námið vel að þeirra
sögn. Að auki má nefna að ein stúlka úr hópnum vorið 2009,
sem var komin með allmargar einingar til stúdents prófs,
sagði að ferlið hefði orðið til þess að hún hóf nám á ný og
stefnir nú á viðskiptafræði við Háskóla Íslands.
Í hópnum vorið 2008 var tveimur konum sagt upp
störfum meðan ferlið var í gangi. Það var vitaskuld mikið
áfall fyrir þær en báðar töluðu þær um að það væri gott að
vera í þessu verkefni fyrst svona fór og fá þann stuðning
sem þær gátu fengið með þátttöku sinni. Önnur fékk aðstoð
náms- og starfsráðgjafa við gerð ferilskrár og við að sækja
um önnur störf. Hin fékk aðstoð við að sækja um nám í fram-
haldsskóla sem hún hafði lengi velt fyrir sér. Hún hafði svo
samband aftur um haustið til að fá aðstoð vegna námsins og
mats inn í námið. Hún sagði þá að færnimappan hafi hjálpað
mikið og orðið til þess að hún fékk meira metið en ella. Sagð-
ist hún hafa skellt möppunni á borðið, full af sjálfstrausti og
þá loksins var farið að hlusta á hana og fékk hún lífsleikni
og fleira metið.
Á haustönn 2008 töluðu þátttakendur mikið um hvað
þeir væru heppnir að vera í verkefninu á þessum tíma þegar
miklar breytingar áttu sér stað í bönkunum. „Þetta væri
spark til að fara aftur af stað.“ Einnig var þetta áberandi við-
horf í hópnum sem var vorið 2009, þar töluðu næstum allir
þátttakendur um að fara í áframhaldandi nám.
Þó svo ekki hafi farið fram formleg könnun á því hvernig
þátttakendur hafa nýtt sér raunfærnimatið þá má segja að
markmiðum verkefnisins hafi verið náð. Einstaklingar taka
saman þekkingu sína og færni og gera hana sýnilega. Þátt-
taka í ferlinu verður mörgum hvatning til dáða og opnar
nýjar dyr til náms- og starfsþróunar.
U M H Ö F U N D I N N :
Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir hefur starfað sem náms- og
starfsráðgjafi hjá Mími-símenntun frá hausti 2007. Hún tekur
þátt í verkefninu náms- og starfsráðgjöf á vinnustað og hefur
verið verkefnastjóri í verkefnum um raunfærnimat banka-
manna. Gígja er með MA-próf frá Háskóla Íslands í náms- og
starfsráðgjöf og diplóma nám í sama fagi frá Háskólanum
í Þrándheimi í Noregi. Hún er með BA-próf í uppeldis- og
menntunarfræði frá H.Í. og kennsluréttindi frá sama skóla.
Gígja starfaði áður sem náms- og starfsráðgjafi í grunn- og
framhaldsskólum.