Gátt - 2009, Blaðsíða 28
28
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
meðal þeirra yngstu enda rökrétt að ungt fólk missi vinnuna
fyrst þegar fyrirtæki verða fyrir samdrætti; ungt fólk hefur
minnsta starfsreynslu, styttri uppsagnarfrest o.s.frv. Þegar
kom fram á árið 2009 fór þetta að jafnast meira, uppsagnir
fóru að ná í meira mæli til fólks á öllum aldri þó að atvinnu-
leysi sé enn mest meðal þeirra yngstu.
Atvinnuleysi er mest meðal þeirra sem litla hafa menntun
og er nærri helmingur allra atvinnulausra aðeins með grunn-
skólamenntun eða mjög stutta skólagöngu að baki. Fyrir
hrun bankanna var stærri hluti þeirra sem þá voru á atvinnu-
leysisskrá með litla menntun að baki en eftir bankahrun
jókst atvinnuleysi hraðar hlutfallslega meðal iðnaðarmanna
og ákveðinna stétta háskólamenntaðra. Á mynd 2 má sjá
hvernig atvinnuleysi skiptist eftir menntunarstigi í ágúst sl.
Ef við tökum þann hóp, sem er eldri en 20 ára og án
menntunar og sleppum jafnframt úr þeim sem eru aðeins að
hluta atvinnulausir, má sjá að alls voru 5.380 manns í þeim
hópi í lok september. Þar af voru 2.964 sem teljast lang-
tímaatvinnulausir, þ.e hafa verið atvinnulausir lengur en sex
mánuði, en þá voru alls 13.748 alls á atvinnuleysisskrá.
N Á N A R I G R E I N I N G Á Þ E I M S E M
E R U 2 0 Á R A O G E L D R I , M E Ð
L I T L A M E N N T U N O G A Ð F U L L U
A T V I N N U L A U S I R
Fjöldi þeirra á skrá, sem falla undir ofangreinda skilgrein-
ingu, hefur breyst með svipuðum hætti og heildarhópurinn.
Hröð fjölgun var fram í mars en síðan hefur fækkað nokkuð
yfir sumarmánuðina. Mestur varð fjöldinn í lok mars þegar
6.236 manns úr þessum hópi voru atvinnulausir en þeim
hefur fækkað um nálægt 1.000 manns í sumar og voru sem
fyrr segir 5.380 í lok september. Hafði þá fjölgað lítið eitt í
hópnum frá lokum ágúst þrátt fyrir að fækkað hafi í heildar-
hópi atvinnulausra á sama tíma.
Ef við lítum nánar á hvernig hópurinn er saman settur má
sjá að um 64% hópsins eru karlar og hlutfall karla því nokkru
hærra en í heildarhópi atvinnulausra þar sem karlar telja nú
10%
8%
6%
4%
2%
0%
sept.
2008
1,3
okt.
2008
1,9
nóv.
2008
3,3
des.
2008
4,8
jan.
2009
6,6
feb.
2009
8,2
mars
2009
8,9
apr.
2009
9,1
maí.
2009
8,7
jún.
2009
8,1
júl.
2009
8,0
ágú.
2009
7,7
sept.
2009
7,2
Mynd 1. Atvinnuleysi eftir mánuðum
16%
51%
7%
15%
11%
Grunnskólapróf
Starfsnám ýmisskonar
Iðnnám
Stúdentsnám
Háskólanám
16%
51%
7%
15%
11%
Grunnskólapróf
Starfsnám ýmisskonar
Iðnnám
S údentsnám
Háskólanám
Mynd 2. Skipting atvinnuleysis eftir menntun í september 2009