Gátt - 2009, Blaðsíða 7
7
F A S T I R L I Ð I R
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
1.2. Framlag til náms- og starfsráðgjafar hjá
símenntunarmiðstöðvum
Árið 2009 er fjórða árið sem fjármagni er veitt í náms- og
starfsráðgjöf hjá símenntunarmiðstöðvunum og Mími-
símenntun. Samkvæmt samningi við menntamálaráðuneytið
var ákveðið að verja 47,9 milljónum króna til náms- og starfs-
ráðgjafar fyrir markhópinn á árinu 2008 ásamt 4,3 milljónum
króna sem voru eftirstöðvar ársins 2007. Vegna viðauka-
samnings við menntamálaráðuneytið bættust 3,9 milljónir
króna við ráðgjöfina í ljósi erfiðrar stöðu á vinnumarkaði.
Samtals var því 56,1 milljón króna til ráðstöfunar árið 2008.
Árið 2009 eru til ráðstöfunar í náms- og starfsráðgjöf um 53
milljónir en auk þess geta fræðsluaðilar sótt um fjármagn í
sérstakan sjóð fyrir náms- og starfsráðgjöf. Þegar hefur verið
deilt út um 35 milljónum króna í námsráðgjöf.
Á árinu 2008 voru haldnir 375 kynningarfundir í 322 fyrir-
tækjum. Fundina sóttu 3.590 einstaklingar og komu 1.032 í
viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa í framhaldi af kynningar-
fundum. Sjá mynd 2 á næstu síðu, Kynningar og viðtöl 2008.
Mjög misjafnt er eftir símenntunarmiðstöðvum hversu
hátt hlutfall þeirra sem fara á kynningu skila sér síðan í viðtal
hjá ráðgjafa. Lægst var þetta hlutfall 13% en hæst 80% og
meðaltalið var 29%.
Árið 2008 var heildarfjöldi einstaklingsviðtala 2.799,
þar af var fjöldi endurkoma 819. Meðalverð, sem FA greiddi
fyrir hvert einstaklingsviðtal á árinu, var 11.468 krónur. Níu
af símenntunarmiðstöðvunum tíu náðu markmiðum sínum í
einstaklingsviðtölum í náms- og starfsráðgjöfinni. Sjá mynd
3, Markmið og árangur 2008.
1.3 Framlag til náms- og starfsráðgjafar og
raunfærnimats hjá fræðslumiðstöðvum
iðngreina
Í upphafi árs 2007 gerðu ASÍ og SA viðaukasamning við
menntamálaráðuneytið. Í samningnum er FA falið að skil-
greina nýtingu fjár sem ætlað er að gera fræðslumiðstöðvum
í löggiltum iðngreinum kleift að bjóða upp á þjónustu náms-
og starfsráðgjafa. Einnig að FA þrói í samstarfi við þessa aðila
aðferðir við raunfærnimat sem eru til þess fallnar að nýtast ein-
staklingum sem hafa hafið iðnnám en ekki lokið sveinsprófi.
Á árinu 2008 var veitt upphæð, 31.100.000 kr. í þetta
verkefni. Hins vegar kom til viðbótarfjármagn á árinu vegna
nýs viðaukasamnings ASÍ og SA við menntamálaráðuneytið.
Heildarupphæðin var því 51.165.000 kr. á árinu eða aukn-
ing í málaflokkinn um 65%. Fjármagnið skiptist þannig að
32.241.000 kr. fóru í raunfærnimat og 20.924.000 kr. í náms-
ráðgjöf, þar af 8.365.000 kr. í fast framlag vegna ráðgjaf-
arinnar en 12.559.000 kr. vegna viðtala við einstaklinga.
Raunfærnimat
Í iðngreinum hefur raunfærnimat fest sig í sessi og virðist
að mestu ríkja sátt um framkvæmd milli skóla og atvinnu-
lífs. Mikil aðsókn í þetta úrræði hefur einkennt árið og einnig
fjölgaði þeim löggiltu iðngreinum þar sem boðið er upp á
Mynd 1. Nemendastundir – allt vottað nám fyrir
markhópinn
Tafla 2. Niðurstöður raunfærnimats 2008
Fræðsluaðili
Fjöldi
ein-
stakl.
Fjöldi
grein-
ingar-
samtala
Fjöldi
ein-
inga í
mati
Fjöldi
stað-
inna
eininga
Árang-
ursvið-
mið Fjármagn
Verð pr.
einingu
Fræðsluskrifstofa
rafiðnaðarins
22 123 463 411 411 2.837.000 6.903
IÐAN
fræðslusetur
159 312 6.818 4.363 4.261 29.404.000 6.739
Alls 181 435 7.281 4.774 4.672 32.241.000 6.753
2003 2004 2005 2006 2007 2008
150.000
125.000
100.000
75.000
50.000
25.000
0
Þar af greitt af FAAllt einingabært nám fyrir
markhópinn