Gátt - 2009, Síða 19

Gátt - 2009, Síða 19
19 V I N N U M A R K A Ð U R I N N G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 jobs segir William Bridges (1994) að eitt meginhlutverk stétt- arfélaga verði að leggja áherslu á að tryggja samkeppnis- stöðu félagsmanna í umhverfi þar sem mikil samkeppni ríkir á milli starfsmanna. Menntunarhlutverk stéttarfélaga mun eflast og hlutverk þeirra mun í ríkara mæli snúast um að tryggja samkeppnisstöðu félagsmanna og undirbúa þá fyrir breytingar á vinnumarkaði með því að gera þá starfshæfa og betur í stakk búna til að bregðast við breytingum. Eitt birtingarform þessara breytinga er breytt áhersla í kröfugerð og mótun kjarasamninga. Sigríður Þrúður Stefáns- dóttir (2004) kemst að þeirri niðurstöðu í rannsókn sinni á þróun sí- og endurmenntunar í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði á árunum 1990–2004 að þessir þættir hafa fengið aukið vægi í kjarasamningum. Réttur launþega til menntunar og fræðslu jókst talsvert á tímabilinu. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu mikla áherslu á menntun og fræðslu og birtist það m.a. í bókunum við kjarasamninga sem gerðir voru á tímabilinu. Sigríður bendir á að vatnaskil urðu við gerð kjarasamninganna 1997 og 2000 þegar samkomulag náð- ist um fjármögnun sérstaks starfsmenntasjóðs verslunar- og verkafólks en það sýndi fram á mikilvægi sí- og endurmennt- unar í kjarsamningum. Ingibjörg Eðvaldsdóttir (2009) hefur kannað þróun kjarasamninga VR á árunum 1977–2008. Hún kemst m.a. að þeirri niðurstöðu að greina megi meiri áherslur á þátt einstaklingsins í kjarasamningum með einstaklingsmiðuð ákvæði að leiðarljósi, s.s. persónubundin laun og launavið- töl. Með persónubundnum launum er átt við að laun eigi að endurspegla menntun, ábyrgð, hæfni og færni starfsmanna ásamt innihaldi starfsins og þeirri ábyrgð sem fylgir starf- inu. Samfara þessum breytingum hafa stéttarfélög eins og VR boðið félagsmönnum upp á námskeið í launaviðtölum. Þessi námskeið hafa gengið út á það að einstaklingar þekki styrkleika og veikleika sína, greini helstu hæfnisþætti sína og komi auga á á hvaða sviðum þeir helst vilja bæta sig. Þannig er lagður grunnur að því að þátttakendur komi auga á hæfni, færni og þekkingu sem þarf til að bera og nýst getur í starfi. Enn fremur er farið yfir grunnatriði í samningatækni. Í kjara- samningum er ákvæði um að félagsmaður eigi rétt á sérstöku viðtali við vinnuveitenda sinn þar sem til umræðu eru starfs- kjör hans. Nokkur gagnrýni hefur komið fram á markaðslaun og sú gagnrýni hefir m.a. snúið að því að byrðar séu lagðar á félagsmenn að þeir beri ábyrgð á eigin kjarabaráttu. Hug- myndafræðin á bak við þetta er að sérhver starfsmaður sé í stöðugri starfsþróun, sé í raun það starfshæfur að hann geti borið og beri ábyrgð á sjálfum sér. Í kjölfar efnahagshrunsins í október 2008 hafa mörg þessara svokölluðu launaviðtala snúist í launalækkunarviðtöl. Þessi umræða leiðir hugann að hugtökunum starfsþróun og starfshæfni. S T A R F S Þ R Ó U N O G S T A R F S H Æ F N I Kröfur til starfsmanna aukast sífellt. Í nútímavinnuumhverfi er sérhver launþegi sinnar gæfu smiður og segja má að svelti sitj- andi kráka en fljúgandi fær. Ef starf á að endurspegla ábyrgð, hæfni og færni starfsmanna er mikilvægt fyrir starfsmenn að huga vel að menntun sinni og vera í stöðugri þróun. Í rann- sókn Guðrúnar Láru Skarphéðinsdóttur (2008) á helstu eigin- leikum besta samstarfsmannsins kemur fram að hann býr yfir léttleika, jákvæðni, virkri þátttöku í starfi og nýtur virð- ingar samstarfsmanna. Hér er frekar um persónuleg einkenni að ræða en starfstengd. Þuríður Helga Kristjánsdóttir (2007) kemst að þeirri niðurstöðu í rannsókn, sem náði til 209 stjórn- enda í einkageiranum og í opinbera geiranum, að þættir, sem stjórnendum þykir mikilvægastir í fari starfsmanna, eru sam- viskusemi, jákvæðni, dugnaður og stundvísi. Rannsóknir Guðrúnar og Þuríðar sýna glögglega hversu mikilvægir persónulegir þættir eru í fari einstaklinga. Starfsþróun gengur út á að þróast í starfi, tileinka sér nýja þekkingu, færni og hæfni. Áður fyrr var talið að starfsþróun væri á ábyrgð yfirmanna en nú er það almenn skoðun að sér- hver starfsmaður beri ábyrgð á eigin starfsþróun. Hægt er að líta á starfsþróun sem fjárfestingu, bæði fyrir starfsmanninn sjálfan og vinnustaðinn. Gott er fyrir fólk að hafa einnig í huga að starfsmissir gæti verið handan við hornið og því mikilvægt að vera í stakk búið til að sækja um nýtt starf og hafa þá færni, hæfni, þekkingu og reynslu sem auðveldar starfsleitina. Stundum hefur hugtökunum starfsþróun og starfsframa verið ruglað saman; starfsframi gengur út á það að klifra upp metorðastigann en starfsþróun að vera betri í starfinu og tileinka sér nýja færni. Segja má að starfsmenn leggi á það áherslu að fá sanngjörn laun fyrir sanngjarnt vinnuframlag,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.