Gátt - 2009, Síða 26

Gátt - 2009, Síða 26
26 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 atvinnulífsins og Mímis-símenntunar í Skeifunni 8 og þar var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Náms- og starfsráðgjafar frá Mími–símenntun, IÐUNNI fræðslusetri og ráðgjafar frá þjón- ustuskrifstofu Vinnumálastofnunar veittu persónulega ráð- gjöf í formi stuttra viðtala. Þá var fjöldi örnámskeiða í boði, eins og t.d. um viðbrögð við atvinnumissi, hvernig best sé að koma sér á framfæri, GPS-tæki, svefnvenjur o.fl. Ágæt mæt- ing var á Menntatorgið og var mikil ánægja hjá þeim sem sóttu viðburðinn. Samhliða Menntatorginu í byrjun mars stóð samstarfs- hópurinn einnig fyrir opnun vefsíðunnar www.menntatorg.is en vefurinn er ætlaður þeim sem eru atvinnulausir og eru að leita sér að stuttu námi eða námskeiði. Vefsíðan hefur hlotið ágætar viðtökur en sérstök áhersla var lögð á það við vinnu og uppsetningu vefsins að hann yrði einfaldur og notenda- vænn. Sérstakur kynningarbæklingur um www.menntatorg. is var síðan gefinn út í lok sumars. Í maí fór samstarfshópurinn þess á leit við Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, að koma þangað hagnýtum upplýs- ingum um hvaða nám hægt sé að stunda samhliða því að vera á atvinnuleysisbótum. Vel var tekið í hugmyndina hjá Rauða krossinum og í dag er hægt að fá slíkar upplýsingar í gegnum Hjálparsímann 1717. Á því ári, sem liðið er, hefur margt áunnist hjá samstarfs- hópnum. Upplýsingaflæði milli aðila í hópnum hefur alið af sér fjölmargar hugmyndir sem síðan hafa margar hverjar orðið að verkefnum eða afurðum. U M H Ö F U N D I N N : Björgvin Þór Björgvinsson starfar sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Helstu verkefni Björgvins hjá FA tengjast upplýsingasöfnun meðal samstarfsaðila, útgáfu- og kynningarmálum og starfsemi samstarfshópsins „Samstarf um menntunarúrræði“. Hann er með MS-próf í sjávarútvegsfræðum frá Háskóla Íslands og BA-próf í þýsku með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands. Áður starfaði hann m.a. sem sérfræðingur hjá Landsbankanum og verkefnastjóri bæði hjá Útflutningsráði Íslands og hjá SÍF hf. A B S T R A C T It was obvious that the bank crisis in the autumn 2008 would cause serious problems in Iceland. Experts predicted a deep and prolonged recession with more unemployment than had been known for decades in Iceland. Unfortunately these pre- dictions turned out to be true. The board of the Education and Training Service Centre (FA) saw what was on the hori- zon and already last autumn brought together a workgroup to respond to the changing conditions in the labour market. The group – called “Cooperation on Educational Serv- ices” – was made up of representatives from the Ministry of Education, Science and Culture, the Icelandic Confederation of Labour (ASÍ), the Confederation of Icelandic Employers (SA), the Directorate of Labour, the Confederation of State and Municipal Employees of Iceland (BSRB), education pro- viders, and FA that chaired the group. All those who were contacted participated and the first meeting was held at the end of October 2008. There were weekly meetings for the first two months and now, a year later, there have been twenty-four meetings. The workgroup is supposed to map and find educational services for those who face difficulties in the labour market, but the centre targets those who have little formal educa- tion. Hluti af vinnuhópnum „Samstarf um menntunarúrræði“ sem FA setti á laggirnar haustið 2008 vegna breyttrar stöðu á vinnumarkaði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.