Gátt - 2009, Síða 36

Gátt - 2009, Síða 36
36 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 fyrir járnum og hafa fangelsað margar kvennanna. Ég spurði eina þeirra hvað gæfi þeim kjarkinn og kraftinn til þess arna. Hún sagði „Við höfum borið líf í heiminn og okkur ber að varðveita það. Við höfum engu að tapa, við höfum lokið lífs- starfinu, þeir mega beita okkur ofbeldi, deyða okkur en það má ekki gefast upp fyrir óvinum lífsins og kærleikans.“ Það má líka benda á gömlu babúskurnar á Stalín-tímanum sem héldu áfram að sækja ortodoxu kirkjurnar þrátt fyrir ofbeld- isfull bönn yfirvalda. Eða gömlu konurnar í jafnréttisbaráttu svartra í Bandaríkjunum, þær voru oftast úthaldsbestar í átökunum. Það er mörg gjöfin sem fylgir aldrinum, ein er nálægð hins óumflýjanlega, dauðans. Nú er tóm til að undirbúa sig undir hin miklu vistaskipti. Hvernig kveðjum við lífið, vini og ættingja, hvernig gerum við upp okkar mál, hvernig verðum við tilbúin til að leggja upp í þá óþekktu ferð sem allra bíður? Ekki síst þar hefur kristin trú okkur boðskap að flytja, að dauðinn er ekki hið endanlega, lífið hefur sigrað fyrir kærleika Guðs. Við heyrum þau orð gjarnan með dýpri hætti en þegar við vorum yngri með nógan tíma. Sama gildir um bókmenntir og frásagnir sem tengjast eigin lífsreynslu eldra fólks. Að því leyti er nautnahæfnin dýpri en áður þótt vissulega kunni að hafa dregið úr henni á öðrum sviðum. Stundum þegar ég horfi á þetta rúmlega þrítuga fólk, sem er álitsgjafar í sjónvarpi, óar mér við reynslu- leysi þeirra og skorti á sögulegri sýn. Auðvitað er það ágætt eins langt og það nær en af hverju sjáum við varla eða heyrum í fjölmiðlum eldra fólk sem komið er um sjötugt, fólk sem hefur lifað margar kreppur og getur miðlað af reynslu sinni? (Pípari um sextugt) Fjölmiðlar, sjónvarp, útvarp og blöð, móta mjög ímynd aldraðra. Ef hún er dapurleg, skapar það væntanlega kvíða hjá yngra fólki að lenda að lokum í þeim aðstæðum og jafn- framt skekkir það sjálfsmynd þeirra eldri. Gallharður sjálf- stæðismaður var mjög óánægður með núverandi ríkisstjórn en gat þess þó að það væri kostur við forsætisráðherrann að hann var gráhærður og reyndar kona á eftirlaunaaldri. Á úrslitastundu er kallað á elsta þingmanninn til þess að hafa forystu um að leysa þau þungbæru mál sem steðja að þjóð- inni. Kreppur eru samvaxnar lífi Íslendingsins. Við um sjötugt munum þær nokkrar, að vísu ekki af þeirri stærð sem nú blasir við en þegar hinar kreppurnar skullu á höfðum við hins vegar af miklu minna að taka. Eldri kynslóðum ber að miðla reynsluarfinum til þeirra yngri. Þess vegna er brýnt að eldra fólk fái tækifæri og farveg til þess að tjá reynslu sína í fjöl- miðlum til þess að hjálpa þeim yngri að sjá núverandi ástand í miklu víðara samhengi. Reynsla, yfirsýn og yfirvegun þeirra eldri er sú auðlind sem ausa má af þegar á móti blæs eins og nú um stundir. Mótlæti getur verið dulinn vinur. Vinnustaðurinn, þar sem hið persónulega samtal á sér stað, er afar mikilvægur farvegur til að miðla reynslu hinna eldri til hinna yngri. Þess vegna er ákjósanlegt að kynslóðirnar mætist á vinnustaðnum þar sem hver aldurs- hópur fær að njóta sín með þá hæfni sem hann hefur til- einkað sér. Því er símenntun eldra starfsfólks brýn svo að það verði samkeppnisfært á vinnumarkaðinum og geti haldið áfram að taka þátt í atvinnulífinu ef það svo kýs. Ég hef hér fjallað nokkuð um stöðu eldra fólks hérlendis sérstaklega nú í kreppunni út frá mínum bæjardyrum sem 72 ára karls á eftirlaunum og ég vitna þá gjarnan til viðmælenda minna í spjalli um daginn og veginn. Um nokkurra ára skeið hef ég hins vegar tekið þátt í umræðu um þessi mál á nor- rænum grundvelli sem fulltrúi í starfshópi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar sem fjallar um eldra fólk í atvinnulífinu sérstaklega með tilliti til símenntunar (ESN-hópurinn). Þess vegna vildi ég nýta síðara hluta þessarar greinar til þess að gera nokkra grein fyrir þeirri umræðu á norrænum grund- velli. Það er mikil sóun á mannauði þegar fólk þarf að fara á eftirlaun áður en það sjálft kærir sig um. Það er afar dýrt fyrir þjóðfélögin sem hafa kostað miklu til menntunar fólks- ins. Þetta hefur verið vandamál á Norðurlöndunum þar sem eftirlaunaaldur í reynd hefur farið lækkandi. En það er fleira í spilunum. Neikvæð, stöðnuð viðhorf og fordómar gagnvart eldra fólki á vinnustað hafa haft umtalsverð áhrif, jafnvel svo að fólk á sextugsaldri hefur átt erfitt með að fá nýtt starf. Þetta er þekkt alls staðar á Norðurlöndunum og því hefur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.