Gátt - 2009, Page 47

Gátt - 2009, Page 47
47 V I N N U M A R K A Ð U R I N N G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 Starfsmaður skrifstofunnar sá um að boða þá sem misstu vinnuna hjá Varnarliðinu á námskeiðin. Fjölmargir nýttu sér þetta námskeið og margir hurfu til nýrra starfa innan tiltölu- lega skamms tíma, aðrir fóru í nám til að læra það sem þá hafði dreymt um lengi en ákveðinn hópur hefur hins vegar setið eftir á atvinnuleysisskrá. Sá hópur er aðallega ein- staklingar sem höfðu starfað hjá Varnarliðinu stóran hluta af starfsævi sinni og komast eftir tillögulega stuttan tíma á ellilífeyris aldur. V Í Ð T Æ K A R A S A M S T A R F M S S V I Ð V I N N U M Á L A S T O F N U N Miðstöð símenntunar og Vinnumálastofnun á Suðurnesjum hafa verið í samstarfi frá stofnun MSS. Víðtækara samstarf milli þessara aðila varð árið 2005. Samstarfið hefur aðallega verið í tengslum við námskeiðahald og ráðgjöf til skjólstæð- inga Vinnumálastofnunar. MSS skipuleggur námskeið í sam- starfi við Vinnumálastofnun og er tekið tillit til þarfa skjól- stæðinga stofnunarinnar. MSS hefur einnig verið í samstarfi við Atvinnuþróunar- ráð Suðurnesja og Vinnumarkaðsráð Suðurnesja um nám- skeiðahald. Atvinnuþróunarráðið og Vinnumarkaðsráðið halda námskeið fyrir einstaklinga sem reka fyrirtæki eða vilja stofna fyrirtæki. Þessi námskeið eru hugsuð til að efla frumkvöðlahugsun og efla frumkvöðla til að stofna fyrirtæki og leiðbeina þeim um hvernig eigi að reka þau. Námskeiðin gagnast líka fyrirtækjum almennt en þau eru m.a. hugsuð til að efla atvinnulífið á svæðinu. E F N A H A G S H R U N I Ð M I K L A Á R I Ð 2 0 0 8 Þegar efnahagshrunið varð í október 2008 boðaði félags- málastjóri Reykjanesbæjar aðila frá sveitarfélögum, mennta- stofnunum, kirkju, sýslumannsembætti, Rauða krossinum, Hjálpræðishernum o.fl. til fundar. Vel var mætt á fundinn og aðilar sammála um að nú þyrftu allir að leggjast á eitt til að bregðast við breyttum aðstæðum á vinnumarkaðnum. Í kjöl- far fundarins voru tveir hópar myndaðir, þ.e. velferðarhópur og vinnumarkaðshópur. Vinnumarkaðshópurinn átti upptök að Virkjun – miðstöð mannauðs á Suðurnesjum. Ákveðið var að huga þyrfti sérstaklega að þremur meginþáttum, þ.e. nýsköpun, sjálfsstyrkingu og atvinnuleit. Til að sinna verkefninu var Virkjun sett á laggirnar og hófst formleg starfsemi 15. janúar 2009. Megináhersla í Virkjun hefur verið lögð á nám og námsleiðir eftir þörfum einstaklinga, námskeiðahald, fyrirlestra, sjálfsstyrkingu, kynningar frá fyrirtækjum, félögum og félagasamtökum, sérfræðiaðstoð við einstaklinga, menningar- og tómstunda- starfsemi og síðast en ekki síst er um að ræða félagslegt athvarf sem stendur öllum opið. MSS hefur frá stofnun Virkjunar gegnt einu af lykilhlut- verkum í starfseminni. MSS hefur verið með fulltrúa í Virkjun frá byrjun og verið mikilvægur hlekkur í þeirri vinnu sem þar fer fram. Það má segja að hlutverk MSS hafi verið tvíþætt: í fyrsta lagi að bjóða upp á náms- og starfsráðgjöf fyrir ein- staklinga og hópa og í öðru lagi að skipuleggja nám/náms- leiðir og námskeið. Þá gegnir MSS stóru hlutverki í að tengja saman aðila sem geta boðið upp á námskeið fyrir atvinnu- lausa einstaklinga. MSS tengir saman námskeiðahald fyrir frumkvöðla í gegnum Atvinnuþróunarráð og Vinnumarkaðs- ráð. Einnig tengir MSS námskeiðahald fyrir einstaklinga við Virkjun í gegnum samning sinn við Fræðslumiðstöð atvinnu- lífsins. H V E R T Á A Ð V E R A H L U T V E R K S Í M E N N T U N A R M I Ð S T Ö Ð V A N N A Í E R F I Ð U A T V I N N U Á S T A N D I ? Símenntunarmiðstöðvarnar geta gert ýmislegt fyrir einstak- linga sem eru í atvinnuleit. Hjá símenntunarmiðstöðvunum eru starfandi náms- og starfsráðgjafar sem gott getur verið fyrir einstaklinga að leita til þegar miklar breytingar verða á högum þeirra í kjölfar atvinnumissis. Með því að leita til náms- og starfsráðgjafa getur einstaklingurinn velt fyrir sér möguleikum sínum í breyttu umhverfi. Í gegnum samning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) geta símenntunar- miðstöðvar boðið upp á námskeið í færnimöppu- og ferilskr- árgerð og áhugasviðsgreiningar. Með því að skoða hæfni og færni sína getur einstaklingurinn notað þetta tækifæri til að breyta um stefnu og menntað sig í nýtt starf eða styrkt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.