Gátt - 2009, Side 91
91
R Á Ð G J Ö F O G R A U N F Æ R N I M A T
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
G I L D I S T A R F A – R A U N F Æ R N I M A T B A N K A M A N N A
ARNHEIÐUR GÍGJA GUÐMUNDSDÓTTIR
R A U N F Æ R N I M A T – T I L H V E R S ?
Verkefnið Gildi starfa, raunfærnimat bankamanna, byggist á
Leonardo-verkefninu Value of Work (VOW) sem sex Evrópu-
lönd tóku þátt í á árunum 2005–2007 undir stjórn Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins. Unnið var með mat á raunfærni
fyrir þjónustufulltrúa í bönkum og þróuð evrópsk viðmið og
tæki til matsins. Markmið verkefnisins var að þróa aðferð
til að auðvelda einstaklingum með litla formlega menntun
að þróa færni sína og opna leiðir að menntun og þjálfun og
tryggja stöðu sína á vinnumarkaðnum. Markhópur þessa
verkefnis eru starfsmenn fjármálafyrirtækja, þjónustufulltrúar
og nú síðast gjaldkerar sem ekki hafa lokið formlegri fram-
haldsskólamenntun.
F E R L I Ð
Eins og áður segir fæst verkefnið við mat á raunfærni. Þegar
talað er um raunfærni er átt við þá færni sem aflað hefur verið
með ýmsum hætti: á vinnustað, með formlegu og óformlegu
námi og í daglegu lífi, s.s. félagsstörfum og fjölskyldulífi.
Í fáum orðum þá felst raunfærnimatsferlið í: viðtölum
við náms- og starfsráðgjafa og fagaðila, gerð færnimöppu,
sjálfsmati, mati og viðtölum yfirmanna við þátttakendur og
lausn raundæma að viðstöddum tveimur matsaðilum. Náms-
og starfsráðgjafar fylgja einstaklingnum í raunfærnimatsferl-
inu frá upphafi til enda. Tilgangur ráðgjafarinnar er m.a. að
aðstoða fólk við að skoða náms- og starfsferilinn, taka saman
færni sína og reynslu svo hver og einn læri að þekkja sjálfan
sig betur og átti sig á eigin styrkleikum. Í matinu er unnið út
frá tíu viðmiðum um færni í starfi þjónustufulltrúa sem unnin
voru í þróunarverkefninu. Markmiðið er að þátttakendur fái
tækifæri til draga fram raunfærni sína og fá hana metna
og viðurkennda og ekki síður að gera hana sýnilega þeim
sjálfum og hagsmunaaðilum. Ekki fer fram formlegt mat til
eininga á móti námskrá eins og t.d. er gert í raunfærnimati í
löggiltum iðngreinum. Engu að síður er möguleiki á að niður-
staðan verði til þess að einstaklingur fái metnar einingar til
formlegs náms og /eða hann styrki stöðu sína í starfi.
Í janúar 2008 hófst samstarf Mímis-símenntunar, Sam-
taka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Fræðslumiðstöðvar
atvinnulífsins og bankastofnana um
áframhaldandi vinnu við mat á raun-
færni bankamanna. Yfirmatsaðili er
Hrefna S. Briem, forstöðumaður
B.Sc.-náms í viðskiptafræði við HR.
Mímir hefur séð um framkvæmd
verkefnisins og náms- og starfsráð-
gjöf við þátttakendur.
Alls hafa þrír hópar þjónustufull-
trúa lokið verkefninu hjá Mími, sam-
tals 60 manns. Nú á haustdögum
eru 17 gjaldkerar þátttakendur í
raunfærnimatsverkefninu. Að því
loknu hafa 96 einstaklingar farið í
gegnum raunfærnimatsferlið að þeim 19 meðtöldum sem
luku þróunarverkefninu 2007.
R E Y N S L A A F V E R K E F N I N U
Reynsla þátttakenda hefur verið mjög hvetjandi fyrir alla
sem koma að þessu starfi. Í viðtölum við þátttakendur hafa
margir lýst því hvernig sjálfstraust þeirra eykst „bara við það
að gera færnimöppuna“ eins og það er gjarnan orðað og
einnig við að fá þá hvatningu sem veitt er í ferlinu. Fólk áttar
sig á að það hefur áorkað mörgu á lífsleiðinni þó því finn-
ist það ekki í upphafi ferilsins. Bankastarfsmenn hafa margir
sótt fjölda námskeiða, sinnt trúnaðarstörfum o.fl. í gegnum
tíðina þó einstaklingar hafi ekki formlegt próf upp á vasann.
Einn þátttakenda sagði frá því að hún hefði loksins áttað
sig á mikilvægi þess að eiga staðfestingu á námskeiðum til
að setja í færnimöppuna. Hún fór á langþráð námskeið og
sagðist hafa óskað sérstaklega eftir að fá staðfestingu í lokin.
Hún sagði að áður hefði hún í fyrsta lagi ekki þorað að óska
eftir staðfestingarplaggi og í öðru lagi hefði henni ekki þótt
það skipta neinu máli að fá staðfestinguna.
Það er ljóst að með því að taka saman öll þau gögn
sem staðfesta þátttöku viðkomandi, auk þess að skrá færni
sína og reynslu í lífi og starfi, öðlast einstaklingur meiri trú á
sjálfum sér og fær betri yfirsýn yfir allt sem hann hefur tekið
sér fyrir hendur.
Væntingar margra, sem hafa tekið þátt í raunfærnimat-
Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir