Gátt - 2009, Page 96
96
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
S T E R K A R I S T A R F S M A Ð U R
ANNA LÓA ÓLAFSDÓTTIR
Það var í maímánuði sl. sem tutt-
ugu manns settust á skólabekk í
gamla skólanum að Skólavegi 10
Reykjanesbæ, húsnæði Miðstöðvar
símenntunar á Suðurnesjum (MSS)
með það fyrir augum að auka færni
sína í tölvu- og upplýsingatækni.
Þetta var í fyrsta skipti sem MSS
bauð upp á þessa námsleið en við-
tökurnar voru mjög góðar og nokkuð
ljóst að verið var að svara ákveðinni
þörf fyrir stutt en hagnýtt nám þar
sem áherslan er á að auka færni til
að takast á við breytingar í starfi og
efla einstaklinga þegar kemur að tölvu- og upplýsingatækni.
Tilgangur námsleiðarinnar er að auka færni námsmanna
til að takast á við breytingar, stuðla að jákvæðu viðhorfi
námsmanna til starfa, nýjunga, upplýsingatækni, samskipta
og símenntunar og gera þá eftirsóknaverðari starfsmenn.
Hópurinn, sem hóf nám hjá MSS sl. vor, var samstiga alveg
frá byrjun og ríkti þar góður andi allan tímann. Þrátt fyrir
að sólin skini utandyra og vorið skartaði sínu fegursta var
hópurinn áhugasamur frá fyrstu stundu og var einstaklega
gaman að ljúka viðburðarríkum vetri með þessum nem-
endum. Þar fyrir utan var þetta síðasti hópurinn sem útskrif-
aðist úr gamla skólanum á Skólaveginum þar sem MSS flutti
í nýtt húsnæði í sumar. Einn af þessum nemendunum var
Oddgeir Friðrik Garðarsson sem settist niður með Önnu Lóu
Ólafsdóttur, náms- og starfsráðgjafa MSS, og sagði frá upp-
lifun sinni af náminu.
Það var Vinnumálastofnunin á Suðurnesjum sem benti
Oddgeiri á námið en hann hefur verið atvinnulaus síðan í
Anna Lóa Ólafsdóttir
Oddgeir Friðrik Garðarsson (efst til vinstri) ásamt öðrum nemendum á námskeiðinu „Sterkari starfsmaður“ og Önnu Lóu Ólafsdóttur, náms- og starfsráðgjafa
MSS (3. frá vinstri í neðri röð).