Gátt - 2009, Page 100

Gátt - 2009, Page 100
100 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 T hefur verið á Íslandi í fjögur ár. Það er erfitt að skilja hann hvort sem hann talar íslensku eða það litla sem hann kann í ensku. Hann er samt duglegur að reyna og er búinn að læra stafrófið en ekki er hægt að segja að hann sé orðinn læs. Hann rétt stautar sig í gegnum stystu orðin og er mjög feiminn við það. Hann þarf mun meiri þjálfun. V er yngst í hópnum og feimin. Hún kunni ekki stafrófið og var mjög óörugg í byrjun, hún þorði varla að taka þátt. Hún hefur hins vegar braggast mjög mikið og alltaf lært vel heima. Hún kann nú stafrófið og getur lesið einfaldan texta. Hún skrifar vel og er vandvirk. Hún ruglar saman L, R og N en það er mjög algengt hjá Taílendingum. S þekkti stafrófið en kunni það ekki allt saman. Hún hefur mikinn áhuga á að ná hljóðunum rétt og æfir sig mikið. Hún var dugleg að gera heimavinnuna og taka þátt í tímum og fljót að byrja að stauta sig áfram og getur lesið einfaldan texta nokkuð hnökralaust. Hún skrifar mjög fallega og er verulega vandvirk. Hún er svolítið feimin við að taka af skarið, að trúa því að hún geti lesið. Hún þyrfti meiri kennslu til að ná fluginu. Hún á ekki langt í land með að teljast alveg læs. K þekkti stafrófið í upphafi og er skýrmælt. Hún hefur hins vegar ekki mikinn orðaforða og óörugg með að tala en skilur mjög mikið. Hún var mjög vinnusöm, vandvirk, áhugasöm og fljót að læra. Hún gat í lokin lesið einfalda texta hnökralaust og orðin frakkari við að skrifa orð sjálf. R er altalandi á íslensku og ákveðin í því að ná því að læra að lesa og skrifa. Hún vann heimavinnuna sína vel, kom með mikið og gott innlegg og var gjarnan túlkur þegar eitthvað skildist ekki nógu vel. C er mjög vandvirk og hörkudugleg. Hún er hins vegar feimin og mjög hrædd við að gera mistök. Hún skrifar fallega og talar nokkuð skýrt þótt hún eigi erfitt með framburð á R. Hún vildi ekki lesa upphátt þegar aðrir heyrðu en las upphátt þegar við vorum bara tvær. Hún hefur tekið mikið stökk þar sem hún kunni ekki stafrófið í byrjun en er núna stautfær, forvitin og orðin svolítið stolt af sér. B er læs og skrifandi. Hann kom í hópinn því að hann vildi fá meira öryggi. Hann tók miklum framförum og rithöndin styrktist mikið ásamt því sem stafsetningin batnaði. Ég tel ekki nauðsyn á að B fari á annað lestrar- eða skriftarnám- skeið en það er hins vegar ómetanlegt að hafa hann í þessum hópi sem var óöruggur og með lélega sjálfsmynd eftir að hafa verið einangraður í mörg ár vegna ólæsis og minnimáttarkenndar. U M H Ö F U N D I N N Sólborg Jónsdóttir starfar sem verkefnastjóri og íslensku- kennari hjá Mími-símenntun. Sólborg hefur ásamt Þorbjörgu Halldórsdóttur samið bæði almennt og starfstengt námsefni í íslensku fyrir útlendinga. Kennari námskeiðsins var Vala Þórsdóttir, leikritahöf- undur og íslenskukennari. อักษร ليمج حابص Taílenska Arabíska Singalíska orðið: stafróf setningin: góðan daginn setningin: Hvar er bókin mín?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.