Úrval - 01.07.1970, Blaðsíða 3
FÖRSPJÁLL 4^
L_________________/
SÉRSTÖK ASTÆÐA er til að vekja
athygli á bókinni í þessu hefti. Hún
heitir „Hvernig er rússneskur njósn-
ari þjálfaður” og er hvort tveggja
í senn: býsna fróðleg og afburða
spennandi. Fyrri hlutinn birtist í
þessu hefti, en sá síðari í ágúst-
heftinu. Bókin er svo
spennandi, þegar fyrri
hlutanum sleppir hér
á eftir, að við erum
þess fidlvissir, að les
endur munu bíða. með
óþreyju eftir fram-
haldinu.
EFNI BÓKARINNAR
verður að sjálfsögðu
ekki rakið hér, held-
ur greint frá tilurð
hennar lítillega, en
nánar er sagt frá henni á titilsíð-
unni. í rúmlega tvö ár hefur Readers
Digest látið fara fram víðtœka
rannsókn upp á eigin spýtur á skipu-
lagi og starfsháttum KGB, hinnar
risavöxnu njósna- og leyniþjónustu
Sovétríkjanna. Margir af færustu
blaðamönnum og ritstjórum tímd-
ritsins hafa ferðast vítt um veröld-
ina í leit að sönnunargögnum um
njósnastarfsemi Rússa og uppgötv-
að ýmsar staðreyndir, sem ekki hafa
verið kunngerðar fyrr. Öllu þessu
efni hefur verið safnað saman í
eina bók, sem kemur
út innan skamms, en
birtur hefur verið úr-
dráttur 'úr henni. Bók-
in er byggð upp sem
saga eins rússnesks
njósnara, Kaarlo Tu-
omi að nafni, og er
þar af leiðandi spenn-
andi eins og bezta
skáldsaga, enda þótt
hvert atriði hennar sé
dagsatt. Þótt fengur
sé að hinum margvís-
legu upplýsingum, sem fram koma,
er það fyrst og fremst saga manns-
ins, njósnarans, sem mesta athygli
vekur. Og þegar lestri bókarinnar
er lokið, fœr lesandinn ekki aðeins
vitneskju um líf njósnara og starfs-
aðferðir þeirra, heldur er hann
Njósnarinn Tuomi.
L
ðllFW'ÍÉ
500.00. í lausasölu krónur
Myndamót: Raígraf h.f.
Kemur út mánaSarlega. Utgefandl: Hilmlr hf.,
Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, slmi 35320
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. AfgreiSsla: BlaSadreif-
ing, Skipholti 33, sími 36720. VerS árgangs krónui
50.00 heftið. Prentun og bókband: Hilmlr h.f.