Úrval - 01.07.1970, Blaðsíða 19
ER BYLTING í FLUTNINGUM Á NÆSTALEITI?
17
þegunum til viðeigandi flugstöðv-
arbygginga.
Fáránleg hugmynd? The Budd
Company í Fíladelfíu hefur þegar
framleitt slíkt farartæki, svokall-
aðan „Himnavagn“, sem ein af
þyrlum Sikorskys, S-64 Skycrane
(Himnahegrinn) á að hefja á loft.
Þessi forvitnilega nýja kynslóð
farartækja, loftpúðaskip og loft-
púðalestir, sjálfvirknibílar, flug-
vélar, sem hefja sig lóðrétt til flugs
eða af mjög stuttum brautum og
setjast á sama hátt, „fólksflutninga-
hylki“, öll þessi farartæki geta
valdið algerri byltingu á flutninga-
kerfi okkar.
En munu þau gera það? Er ég
lít nú um öxl og hugsa um svör
þau, sem ég fékk við þessari spurn-
ingu í þeásari upplýsingaleit minni,
þá virðast þau renna saman í eina
allsherjarrödd, sem segir: Já ... á
landi, í lofti og á sjó... flutninga-
byltingin er hafin.
Auðvitað er eftir að ryðja ýms-
um mannlegum hindrunum úr vegi.
En það má leysa jafnvel þau vanda-
mál, ef löngunin til þess að leysa
þau verður nógu sterk.
En verður hún nógu sterk til
sliks? Spyrjið sjálf ykkur á morg-
un, er þið mjakizt áfram í borg-
arumferðinni á 10 mílna hraða á
klukkustund í bílnum ykkar, sem
getur náð 100 mílna hraða á
klukkustund.
Meðan ég var í herleyfi, fór ég eitt sinn með vinstúlku mína í úti-
kvikmyndahús. Þegar myndin var hálfnuð, kom strákur úr bíl þar ná-
lægt og barði á gluggann hjá mér. Svo sagði hann: „Heyrðu, alltaf þegar
þú kyssir stelpuna þina, stígurðu á bremsuna. Pabbi segir, að þú verðir
að taka löppina af bremsunni, ef þú þarft endilega að halda áfram að
kyssa hana. Blikkið í bremsuljósunum eru alveg að gera út af við alla
í bílunum hérna i kring.“
Jóhn J. Cerny.
Skömmu eftir að við gengum i söfnuðinn, var okkur boðið i veizlu
á „al'lra dýrlinga daginn" heima hjá prestinum. Allir áttu að koma með
eitthvað, sem þeir álitu vera nauðsynlegt að hafa meðferðis, ef þeir yrðu
skipreika á eyðieyju. Ég var alveg í vandræðum, því að mig langaði til
þess að fnna upp á einhverju, sem væri fyndið, en samt „viðeigandi".
En maðurinn minn henti gaman að mér fyrir þennan, „penpíuhátt".
Loks valdi ég þrjú risavaxin möskurviðarblöð og skrifaði á þau með
stórum prentstöfum „FlKJA".
Val mitt vakti mikinn fögnuð i veizlunmi, en maðurinn minn gerði
alveg út af við alla, þegar hann sýndi framlag sitt. Það voru vírklippur,
og þær báru þetta merki: „HANDHÆGAR FlKJUBLAÐAKLIPPUR".
Frú Donald Taie.