Úrval - 01.07.1970, Blaðsíða 113
ÞANNIG ERU NJÓSNARAR RÚSSA ÞJÁLFAÐIR
111
skriffinnskunni. Og hann var ólík-
ur öðrum að því leyti, að hann dró
enga dul á það. „Þú skalt ekki vera
heimskur bókstafsþræll“, sagði
hann við Tuomi. „Takist þér að
finna betri aðferð til þess að fram-
kvæma það, sem þér hefur verið
fyrirskipað, skaltu nota hana án
þess að velta vöngum yfir því. Þú
ferð vestur til þess að ná árangri,
en ekki til þess að fara eftir ýtar-
legum fyrirmælum. Eitt sinn þurfti
ég að koma frá mér orðsendingu
í hvínandi hvelli, þegar ég vann í
New York. Ég mátti ekki neinn
tíma missa, svo að ég setti hana í
dulmál í sæti mínu í neðanjarðar-
lest þar, hinn rólegasti. Hafi ein-
hverjir tekið eftir sýsli mínu, hafa
þeir líklega haldið, að ég væri að
ráða krossgátu. Stundum valda
mest áberandi staðir eða verknaðir
minnstri tortryggni. Mergur máls-
ins er þessi: Þegar maður er bú-
inn að koma sér fyrir, má maður
ekki eyða svo miklum tíma í að
leynast og laumast, að maður fái
ekki ráðrúm til þess að framkvæma
neitt“.
Polyakov spurði Tuomi í þaula
og leitaði hinna ýtarlegustu upp-
lýsinga um líf hans, sem gætu kom-
ið heim og saman við „goðsögnina“,
sem átti að taka til alls þess, sem
hann hefði gert síðustu 25 árin.
„Auðvitað verðum við að „frum-
semja“ heilmikið", sagði hann til
skýringar, „en samt alltaf með hlið-
sjón af því, að við getum notfært
okkur sannleikann til þess að fylla
upp í ýmsar eyður. Þannig verður
auðveldara fyrir þig áð tileinka þér
þennan tilbúna æviferil, þessa
„goðsögn" um líf þitt“.
Samkvæmt „hinum tilbúna ævi-
ferli, sem samþykktur var af „Mið-
stöðinni", fæddist Tuomi í Michi-
ganfylki og ólst þar upp í nokkr-
um smábæjum. Stjúpfaðir hans yf-
irgaf fjölskylduna, eftir að systir
Tuomi dó árið 1932, og það fréttist
aldrei neitt af honum eftir það.
Næsta ár fluttist Tuomi með móð-
ur sinni til Minnesotafylkis og
starfaði þar á búgarði ömmu sinn-
ar. Þegar hann var í sumarleyfis-
ferð í nyrðri hluta Michiganfylkis
fimm árum síðar giftist hann
bernskuvinstúlku sinni, Helen Mat-
son að nafni. Rekstur búgarðsins
fór að ganga illa á árinu 1941, og
því fór Tuomi í atvinnuleit til New
Yorkborgar. Þar bjó hann í fjöl-
býlishúsi við Decaturgötu í Bronx-
hverfinu. Herkvaðningarskrifstofan
veitti honum undanþágu frá her-
þjónustu, vegna þess að hann hafði
eiginkonu, móður og sjúka ömmu
á framfæri sínu í Minnesota.
Tuomi tókst ekki að fá starf í
New York, en svo fékk hann starf
í skógarhöggsmannabúðum við
Fraserána nálægt borginni Van-
couver á vesturströnd Kanada.
Seinna fór hann að vinna hjá timb-
ursölumiðstöð sama fyrirtækis í
sjálfri Vancouver. Og þar var hann
allt fram til ársins 1949. Það ár
fluttist hann til Milwaukee í Wis-
consinfylki. Þar starfaði hann á
vélaverkstæði og síðar í afgreiðslu-
deild einnar af verksmiðjum Gen-
eral Electric. Svo setti hann á lagg-
irnar lítið skápaverkstæði. Árið