Úrval - 01.07.1970, Blaðsíða 58
56
ÚRVAL
umvafðar friði og ró. Brúnleitu og
skapgóðu eyjarskeggjarnir búa
niðri við ströndina, þ. e. á mjórri,
frjósamri ræmu milli strandarinn-
ar og kóralklettanna, sem taka við
svolítið fjær ströndinni. Hús þeirra
standa undir blöðum kókoshnetu-
trjánna. í glitrandi sandinum getur
að líta hina sérkennilegu báta Suð-
urhafseyjanna. Unaðslegur stað-
vindur úr austri ber með sér hðf-
ugan frangipaniilminn.
Aðkomumenn verða alveg orð-
lausir af undrun, þegar þeir hafa
ekið um hálfa mílu inn á eyjuna.
Þar getur að líta algera eyðilegg-
ingu og auðn landsins, hvert sem
litið er. Þetta líkist helzt landslagi
á tunglinu eða borg, sem þurrkuð
hefur verið út með vetnissprengju.
Þetta landslag líkist helzt ein-
hverju, sem fyrir augun hefur bor-
ið í martröð. Ryklag hvílir yfir
öllu, enda hamast jarðýtur og
mokstursvélar þar stöðugt nótt sem
nýtan dag við að moka fosfatauð-
inn upp úr jörðinni. Þessi tæki éta
iörðina í sig og þyrma engu. Og af-
köstin eru gífurleg eða yfir 2 millj-
ónir tonna á ári. Þetta er það óhrjá-
lega, en óhjákvæmilega verð. sem
Naurubúar hafa orðið að greiða
fyrir ríkidæmi sitt.
45 millión tonn af fosfati hafa
þegar verið grafin úr þessari sví-
virtu iörð. Innan 25 ára verða tæk-
in búin að „éta fosfatlögin upp til
agna“. Verður þar um harmleik að
ræða? Nei, ekki á Nauru. Eyríki
þet.t.a mun snúast gegn þessum að-
steðiandi vanda með því vopni, sem
mest ofurgnótt er af á eyiunni, þ. e.
peningum. De Roburt forseti er
bæði hagsýnn og framsýnn í mót-
setningu við hina eyðslusömu þegna
sína. Hvert tonn af fosfati gefur
eyríkinu 12 dollara í aðra hönd. Af
þessari upphæð borgar ríkisstjórn-
in landeigendum 60 cent, en 3 doll-
arar og 80 cent eru sett í fimm
sjóði, sem gefa af sér vexti og nota
skal til fjárfestingarframkvæmda í
framtíðinni. Þegar fosfatlögin verða
gengin til þurrðar árið 1995, mun
eyríkið eiga um 500 milljónir doll-
ara í ýmsum fjárfestingarfram-
kvæmdum, sem munu gefa af sér
25 milljón dollara árstekjur eða
með öðrum orðum rúmlega 7000
dollara árstekjur á hvern eyjar-
skeggja, karla, konur og börn!
ÞEIR MÆTA Á
ÚTBORGUNARDÖGUM
Með þessar öruggu milljónir að
bakhjarli halda eyjarskeggjar alls
ósmeykir áfram þeirri tilraun, sem
þeir hófu, er þeir stofnuðu fyrsta
sjálfstæða lýðveldi á Suður-Kyrra-
hafinu og hið eina, sem er fylli-
lega sj álfíjtætlj. Lýðveldið Nauru
hefur að vísu engan herafla, enga
milliríkjasamninga, enga skatta,
engin sendiráð og á jafnvel ekki
sæti hjá Sameinuðu þjóðunum, en
samt heldur það uppi öllum þeim
ríkisstofnunum og þeim stjórnar-
embættum, sem ósvikin „minirík-
isstjórn“ hefur þörf fyrir sér til
stuðnings við stjórn ríkisins. Þar er
meðal annars um að ræða stjórnar-
skrá upp á 35 blaðsíður með skýr-
um ákvæðum. Og 15 fyrstu liðir
þeirrar stjórnarskrár eiga að
tryggja þegnunum afdráttarlaus
„mannréttindi". Rétt hjá flugbraut