Úrval - 01.07.1970, Blaðsíða 111
109
ÞÁNNIG ERU NJÓSNARÁR RÚSSA ÞJÁLFAÐIR
Tuomi, Galkin og Fainna að ljúka
einum af dásamlegu hádegisverð-
unum hennar Yelenu, þegar Kapal-
kin gekk inn með brúna nautleður-
tösku í hendinni. Hann opnaði hana
og fékk Tuomi dökkblá jakkaföt,
grá tvídjakkaföt og brúnan yfir-
frakka með fóðri, sem fest var á
með rennilás. Þau kröfðust þess öll,
að Tuomi mátaði fötin tafarlaust.
Hann klæddi sig í tvídfötin, hvítu
skyrtuna, svarta prjónabindið,
svörtu skóna og sokkana inni í
svefnherberginu. Svo braut hann
saman vasaklút og stakk honum í
brjóstvasann á sama hátt og hann
hafði séð gert í nýjustu amerísku
kvikmyndunum. Þau fóru öll að
hlæja og klappa, þegar hann kom
aftur inn í dagstofuna. „Þú lítur út
eins og ósvikinn Ameríkumaður“!
hrópaði Fainna. „Þú verður alls
staðar álitinn vera Ameríkumað-
ur“.
LOKAPRÓFIN.
í miðjum marzmánuði árið 1958
birtist Galkin eitt sinn óvænt í
íbúðinni. Hann var þreytulegur og
áhyggjufullur á svip. „Ég er ný-
kominn frá „Miðstöðinni“, og ég
verð að tilkynna þér það, að þú
ferð miklu fyrr burt en ég hafði
vonað“, sagði hann. Samskiptin við
Bandaríkin eru mjög „óróleg" núna
Við verðum að „gróðursetja“ þig
þar sem allra fyrst, svo að þú verð-
ir tilbúinn þar, ef samskipti ríkj-
anna verða mjög erfið eða rofna
alveg eftir tvö til þrjú ár. Ef stríð
kynni að brjótast út, eru menn eins
og þú þeir einu, sem við getum
reitt okkur á“.
„Hve fljótt"? spurði Tuomi.
„Ég veit það ekki nákvæmlega",
svaraði Galkin. „Þú verður að
minnsta kosti að standast mjög
ströng próf fyrst. Það er ekki min
hugmynd, heldur krefjast þeir í
„Miðstöðinni" þess. Á eftir færðu
kannske tækifæri til þess að eyða
svolitlum tíma hjá fjölskyldu þinni.
Svo verðum við að vinna að því að
gera „goðsögnina" um æviferil þinn
pottþétta, og þú ferð í ferðalag
til Vestur-Evrópu. Þú verður að fá
svolitla æfingu í að leika Ameríku-
mann utan Sovétríkjanna“.
Prófið stóð í fimm daga og tók
til allra þátta þjálfunar hans. Það
voru ekki eingöngu hinir venju-
legu kennarar Tuomi, sem spurðu
hann, heldur einnig ókunnir menn,
sem hann fékk aldrei a'ð vita nein
deili á. Sumar spurningar þeirra
gengu svo miklu lengra en það,
sem honum hafði verið kennt, að
hann óttaðist, að þeir væru ákveðn-
ir í að fella hann.
Tuomi fékk ekki að vita um úr-
slit prófsins fyrr en eftir þrjá daga.
Þá færði Galkin honum skilaboð
frá „Miðstöðinni". „Þér er hérmeð
opinberlega tilkynnt, að prófárang-
ur þinn var sá, sem hér segir: í
kenningum og starfsaðferðum á
sviði njósna hlauztu ágætiseinkunn,
þó með þeirri athugasemd, að þú
þurfir að ná meiri leikni í að skynja
það, ef þér er veitt eftirför, og
„hrista alla sporhunda af þér“. í
heimspeki oghugmyndafræðinjósn-
anna fékkstu ágætiseinkunn. í ljós-
myndun fékkstu fullnægjandi eink-
unn. í dulmálsfræði fékkstu ágæt-
iseinkunn. í amerískum fræðum og