Úrval - 01.07.1970, Blaðsíða 41
VÍSINDIN í ÞJÓNUSTU RÉTTVÍSINNAR
39
að vera, getur notfært sér þjónustu
Glæparannsóknarstofunnar alger-
lega ókeypis. Það eina, sem það
þarf að gera, er að senda möguleg
sönnunargögn til Glæparannsóknar-
stofunnar. Á fjárhagsárinu 1969
rannsakaði Glæparannsóknarstofan
samtals 355.913 sönnunargögn, og
af þeim höfðu 93.886 borizt þangað
frá lögregluliðum víðs vegar í
Bandaríkj unum.
Einna mestu annirnar eru hjá
eðlisfræði- og efnafræðideildinni.
Þar getur verið um alls konar ólík
sönnunargögn að ræða, til dæmis
leirugan skó, snúna og beyglaða
hurð af peningaskáp eða mikilvæg
líffæri mannslíkamans. í undir-
deild þeirri, sem fæst við jarðvegs-
greiningu, rýnir rannsóknarlög-
reglumaður í gegnum smásjá í sýn-
ishorn af óhreinindum, sem fundizt
hafa í buxnauppbroti manns, sem
grunaður hefur verið um morð. Eru
sérkenni þessara óhreininda hin
sömu og sérkenni jarðvegsins á
svæðinu, þar sem líkið fannst? Slík
sönnunargögn geta verið mjög þýð-
ingarmikil, þegar reynt er að
tengja hinn grunaða við staðinn,
sem glæpurinn var framinn á.
Árið 1960 var Joseph Corbett, jr.
grunaður um að hafa rænt hinum
vellauðuga Adolph Coors III. og
drepið hann síðan. Bíll Corbetts,
sem var gulur og af Mercurygerð,
fannst kolryðgaður nálægt Atlantic
City í New Jerseyfylki. eða 1800
mílum frá Morrison í Coloradofylki,
þar sem glæpurinn hafði verið
framinn. Allt hafði verið rifið inn-
an úr bílnum, svo að grindin ein
var eftir. Rannsókarlögreglumenn
skófu leðju innan af brettum bílsins.
Síðan var leðja þessi efnagreind og
borin nákvæmlega saman við 421
jarðvegssýnishorn. Og leðjan inn-
an á brettunum reyndist einmitt
vera af þeirri tegund, sem er ein-
kennandi fyrir það svæði, þar sem
Coors hafði verið rænt og hann
síðar myrtur. Þessi niðurstaða
reyndist þýðingarmest á vogarskál-
um réttvísinnar, þegar Corbett var
dæmdur sekur.
Fyrir hvert æsispennandi sönn-
unargagn og niðurstöðu eru svo
hundrað sönnunargögn af ósköp
hversdagslegri gerð. Árið 1965 dó
15 ára piltur, Claude Garcia að
nafni, í Saginaw í Michiganfylki,
er bíl var ekið á hann. Ökumaður-
inn flýtti sér að strjúka burt af
slysstaðnum. Rannsóknarlögreglu-
menn Alríkislögreglunnar fundu
örlitlar agnir af blágrænni máln-
ingu í fötum látna piltsins. Þeir
fundu fljótlega litblæ þennan í bíla-
litaskrá ríkisins, þar sem sýnishorn
eru geymd af öllum litbrigðum allra
bandarískra bíla og margra er-
lendra þar að auki. „Þið skuluð
leita að nýlegum Ford, sem málað-
ur hefur verið milliblágrár með
málmkenndum blæ.“ Þannig hljóð-
aði ráðlegging Glæparannsóknar-
stofunnar Saginawlögreglunni til
handa. Ökumaðurinn gaf sig síðan
fljótlega fram.
Starfsmenn rannsóknarstofunnar
reiða sig ekki eingöngu á sjónina,
er þeir bera saman bílaliti. Þeir
efnagreina einnig málningarflögur
efnafræðilega og með hjálp litrófs-
sjárinnar. Litrófssjánni er beitt á
þann hátt, að málningarögn er