Úrval - 01.07.1970, Page 4
2
r
ÚRVAL
EFTIR BARN
Brostin voru augu,
þó var blíða á kinnum,
saklaust brjóst
sofið lá á dúni;
blíðu grét móðir,
björt augu faðir,
sakleysi bæði;
svo skal barn gráta.
En lítill engill
leið á skýjum
röðuls nýrisins,
reifaður gullblæjum.
Andliti blíðu,
björtum augum,
fríðan breiddi faðm
mót föður Ijósa.
Sveinbjörn Egilsson
(1791—1852).
L______________________
margs vísari almennt um það ó-
geðíellda fyrirbœri sem njósnir eru
nú á dögum, hvort sem það eru
Rxissar eða Bandaríkjamenn, sem
fyrir þeim standa.
—o—
ÞEIR SEM mikið hafa ferðast og
séð flest af því sem markverðast
þykir meðal stórþjóðanna, taka að
beina sjónum sínum að hinum
smœrri stöðum, sem oft reynast
miklu sérkennilegri og athyglis-
verðari þegar allt kemur til alls.
Einmitt af þessum sökum meðal
annars fer straumur ferðamanna
hingað til lands stöðugt vaxandi.
En minnsta og afskekktasta lýðveldi
veraldar, eyríkið Nuru í Kyrrahafi,
geta ferðalangar ekki heimsótt,
nema þeir séu boðnir þangað sem
gestir einhvers íbúans! Það segir
frá þessu furðulega dvergríki i grein
hér á eftir, en þar er meiri vel-
megun en nokkurs staðar annars
staðar i veröldinni. Tekjur á hvern
íbúa eru tvöfalt hœrri en hjá þeim
löndum sem mest velferðarríki eru
talin.
MARGT FLEIRA efni mœtti minn-
ast á í þessu hefti, svo sem grein
um byltingu í flutningatækni, sem
sögð er á næsta leiti; frásögn konu
sem átti við geðtruflun að stríða
um skeið, en hlaut fullan bata; ást-
arsögu Carols Rúmeníukonungs;
grein um Frúarkirkjuna í París,
svo að nokkuð sé nefnt.