Úrval - 01.07.1970, Page 21
ÆVINTÝRI RÚMENÍUKONUNGS ...
19
Carol Rúmenhikonungur og Madame Lupescu.
að hafa þá ríkt í áratug og notið
samvista í leynum við konuna,
sem hann elskaði, flúði hann land
að nýju ásamt henni og lifði síðan
í útlegð með henni.
Saga Carols II. Rúmeníukonungs
og Héléne Lupescu (ekki Mögdu,
eins og hún hefur verið kölluð í
dagblöðunum) er sönnun þess,
ásamt sögu Játvarðs VIII. fyrrver-
andi Englandskonungs og hertoga-
ynjunnar af Windsor, að kOnung-
leg ástamál með glæsilegum tilþrif-
um eru ekki einskorðuð við horfna
tíð, heldur geta þau jafnvel
blómstrað enn á tímum 20. aldar-
innar, aldar lýðræðisins.
Héléne Lupescu fæddist í rúm-
ensku borginni Jassy. Faðir hennar,
sem var lyfsali, var Gyðingur að
ætt, en hann hafði tekið kristna
trú. Móðir hennar var rússnesk
dansmær. Fjölskyldan hlýtur að
hafa haft góð sambönd á æðri stöð-
um,- því að litla stúlkan, sem sat
teboð Elísabetar drottningar, var
einmitt Héléne. Fjölskyldan hafði
verið í heimsókn hjá eftirlitsmanni
eins af konungsóðulunum, og þá
hafði telpunni verið boðið í teboð
drottning'ar. Og þar hitti hún Carol
fyrsta sinni.
Carol og Héléne tilheyrðu bæði
þeirri kynslóð, sem náði fullorðins-
árum í fyrri heimsstyrjöldinni 1914
—‘18. Og ringulreið þessarar óald-
ar hafði sín áhrif á þau bæði, áhrif,
sem voru ekki sársaukalaus.
Faðir Carols var Ferdínand Rú-
meníukonungur, afkomandi kon-
ungsættarinnar Hohenzollern-Sig-