Úrval - 01.07.1970, Side 63
ÞEGAR STOLT BREZKA FLOTANS FÓRST
61
vegna stöðu minnar. Við vorum alls
6 menn, sem önnuðumst búðina,
bókasafnið og barinn og þeir einu á
skipinu sem ekki gátu talizt her-
menn eða sjóliðar. Þegar aðrir skip-
verjar voru með byssurnar eða á
öðrum hernaðarstöðvum, var okkar
verk að aðstoða við hjúkrun særðra
manna, ef til bardaga kom og born-
ir voru eða komu á annan hátt und-
ir þiljur, þar sem læknar og hjúkr-
unarlið hafði bækistöðvar sínar.
Verzlunarstjórinn, Purse, var elzt-
ur slíkra í flotanum. Hann hafði
verið á herskipi í fjrrri heimsstyrj-
öldinni og tekið þátt í hinni miklu
sjóorustu við. Jótland. Fyrsti að-
stoðarmaður hans var „Tuppy“
Green frá Brixham, reglulegur sjó-
hundur, sem hafði verið háseti á
togurum frá sama bæ, en það þótti
mikill frami í flotanum. Sonny
Southgale var bókavörður skipsins,
en aðrir „civil“ voru Charlei Leæis
og „Buddy1 Nieholson.
Fyrr en varði fengum við orust-
una sem við höfðum vonast eftir. í
fylgd með Hood vorum við fyrstir
skipa til þess að finna Bismark og
berjast við hann, á hafinu milli fs-
lands og Grænlands.
Varðstjórinn, Shipward, varð
ásamt nokkrum öðrum foringjum,
fyrstur var við Bismark og síðar
sjónarvottur að hinum hryllilega at-
burði, þegar ægileg sprenging varð
í Hood, himinhá eldsúla gaus í loft
upp og kolsvart reykský huldi skip-
ið.
Þegar eldurinn dvínaði og reyk-
urinn leið frá, sást að Hood hafði
sprungið í tvennt um miðju.
Eftir nokkur augnablik var ekk-
ert lengur sjáanlegt af hinu mikla
orustuskipi og stolti brezka flotans.
Pow, sem var staddur mjög nálægt,
varð að setja stýrið hart í borð og
forða sér frá staðnum, hið fyrsta,
því nú var skipið í mikilli hættu og
auðvelt skotmark hinna 15 þuml.
fallbyssna Bismarks, þessa öfluga
óvinar.
Frá smærri byssum þutu kúlurn-
ar um loftið og var hávaðinn gífur-
legur frá stanzlausri skæðadrífu og
ekki dró hávaðinn frá skothríð Pow
úr, er svaraði með öllum sínum
fallbyssum, smáum og stórum. 15
þuml. kúla frá Bismark hæfði
stjórnpall Pow, fór þar í gegnum öll
þil og stálvarnir og sprakk. Allir
foringjar og sjóliðar, sem þarna
voru fólrust, að undanteknum
captain Leach og merkjamanninum.
Önnur kúla hæði efsta hluta 5,25
þuml. skotturns á framþiljum og
þriðja kúlan hitti flugvél skipsins,
sem var að hefja sig til flugs í eft-
irlitsferð og gjöreyðilagðist hún.
Þá fyrst þegar skipið kom 1 höfn
í Forthsyth, kom í Ijós að aðeins ein
kúla hafði hæft skipið fyrir neðan
sjólínu, farið í gegnum mörg vatns-
þétt skilrúm, staðnæmst í rafala-
geymslunni, án þess að springa.
Einn sjóliðanna sagði mér frá ein-
kennilegu atviki. Kúla hafði hitt
einn skotturninn, hringsólað með
veggjum fram, fallið síðan á gólfið
án þess að snerta nokkurn mann,
sem þar var, og án þess að springa.
Eftir viðureignina við Bismark
huldi Pow sig þykku reykskýi og
vék af orustuvellinum og aftur varð
kyrrð um borð í skipinu.
Nokkru síðar fengum við skipun