Úrval - 01.07.1970, Page 89
87
ÞANNIG
ERU
NJÖSNARAR
RÚSSA
ÞJÁLFAÐIR
EFTIR
JOHN
BARRON
FYRRI HLUTI
ngur og myndarlegur
ferðalangur, norrænn
yfirlitum, steig út úr
Síberíulestinni á Yaro-
slavskyj árnbrautar-
stöðinni í Moskvu. Hann steig út úr
þyrpingu farþeganna, sem voru að
yfirgefa lestina, og beið einn síns
liðs afsíðis. Hann gekk undir ýms-
um nöfnum, en hans raunverulega
nafn var Kaarlo Rudolph Tuomi,
fyrrverandi hermaður úr Sovét-
hernum, enskukennari að atvinnu,
en jafnframt leynilegur uppljóstr-
ari á vegum KGB, rússnesku leyni-
og njósnaþjónustunnar. Hann vissi
ekki, hvers vegna hann hafði verið
boðaður til Moskvu né hver ætlaði
að hitta hann þar. En í samræmi
við merki, sem ákveðin höfðu ver-
ið fyrir fram, bar hann saman-
brotna regnhlíf undir vinstri hendi
og beið átekta.
Ókunnugur maður gekk að hon-
um, áður en langt um leið.
„Góðan daginn,“ sagði hann.
„Heyrðu, hvernig líður honum Ef-
im, frænda þínum?“
„Því miður er hann nýdáinn,“
svaraði Tuomi.
„Það var slæmt. Gjörðu svo vel
að koma með mér.“
Þeir óku í litlum Moskvichbíl að
hergistihúsi. Maðurinn fór þar með
Tuomi upp á fjórðu hæð. „Þetta
verður íbúð þín,“ sagði fylgdar-
maðurinn við hann. „Þú færð gesti
eftir svolítinn t.írna, svo að þú skalt
ekki fara út.“
Tuomi féll alveg í stafi vegna
íburðarins og óhófsins í íbúðinni.
Svefnherbergið eitt var stærra en
eins herbergis íbúðin, sem hann