Úrval - 01.07.1970, Síða 95
ÞANNIG ERU NJÖSNARAR RÚSSA ÞJÁLFAÐlR
93
fim. „Þú ert sekur um skemmdar-
verk, og þér mun verða refsað.“
KGB hafði handtekið næturvörð-
inn fyrir annað brot og þvingað
hann til þess að skýra frá eldiviðar-
þjófnaðinum. Helkaldur ótti greip
Tuomi heljartökum, er majorinn
skýrði honum frá sönnunargögnum
í málinu. „Við tókum bara eldivið-
inn til þess að geta haldið áfram
að reka tehúsið," sagði Tuomi. „Á
ég ekki skilið svolitla linkind? Ég
hef barizt í mörgum orrustum. Ég
fékk heiðursmerki fyrir vasklega
framgöngu. Ég hef aldrei framið
neinn annan saknæman verknað.“
Serafim lamdi stöðugt fingur-
gómunum í borðið. Svo svaraði
hann hægt: „En hvað um brauð-
snúðana? Skýrðu okkur frá því,
hvernig þú stalst 100 brauðsnúðum
og troðfylltir á þér vömbina eins
og svín, meðan félagar þínir sultu.
Þarna sérðu! Þú stelur ekki aðeins!
Þú lýgur líka!“
Tuomi var gripinn algeru von-
leysi. Það var sem hann hefði lam-
azt. „Hið eina, sem ég get sagt, er,
að mér þykir mjög fyrir þessu,“
sagði hann afsökunarrómi í ör-
væntingu sinni.
Majorinn hnussaði með fyrirlitn-
ingarsvip. Eftir dálitla þögn sagði
annar náungrnn, sem beið í skugg-
anum: „Fjölskylda þín mun þjást
hræðilega, meðan þú ert í fangelsi.
Það væri synd. Kannske er til und-
ankomuleið fyrir þig.“
„Við hvað áttu?“ spurði Tuomi.
„Það er nóg að segja, að við höfum
svo óskaplega mikið að gera að þú
getir hjálpað okkur,“ svaraði mað-
urinn.
/----------------------------------N
SVEINN GUÐMUNDSSON,
VERKFRÆÐINGUR
Sveinn Guðmundsson er fædd-
ur á Eyrarbakka 27. ágúst
1912. Foreldrar hans eru Guð-
mundur Guðmundsson og Snjó-
laug Sveinsdóttir. Hann lauk
prófi í vélfræði frá Tekniska
Institutet í Stokkhólmi 1936.
Sama ár gerðist hann vélfræð-
ingur hjá Vélsmiðjunni Héðni
og forstjóri og meðeigandi frá
1943. Á vegum íyrirtækisins
hefur hann haft umsjón með
hönnun og byggingu flestra
síldar- og fiskimjölsverksmiðja
á Islandi. Hann hafði forustu
um smíði fyrstu stóru hrað-
frystivélsuinnar hér á landi
1951 og fyrstu íslenzku disil-
vélarinnar 1952. Hann hefur
séð um alhliða uppbyggingu
Héðins síðustu 20 árin og enn-
fremur verið forstjóri Stál-
smiðjunnar hf. og Járnsteyp-
unnar hf. Sveinn hefur tekið
mikinn þátt í félagsmálum iðn-
aðarins og á nú sæti á alþingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann
er kvæntur Helgu Markúsdótt-
ur.
V_________________________________^