Úrval - 01.07.1970, Page 97
95
hANNlG ERU NJÓSNARÁR RÚSSA ÞJÁLFAÐlR
í þessu efni, því að þá fælirðu fisk-
ana burt.“
Tuomi var ekki lofað neinum
launum. En eftir að hann fór að
skýra KGB skilmerkilega frá því,
sem hann heyrði í Kennaraskólan-
um, uppgötvaði hann smám saman,
að KGB launaði sínum mönnum
með leynd. Þegar hann útskrifaðist
úr Kennaraháskólanum árið 1950
og gat hvergi fengið vinnu við
kennslustörf, skarst KGB í leikinn
og útvegaði honum fyrst starf við
Kennaraháskólann og síðan við
námsflokka borgarinnar.
Það var nauðsynlegt að vera
meðlimur í kommúnistaflokknum,
ætti að vera um frama að ræða á
sviði kennslu eða innan KGB. Um-
sókn Tuomi um inngöngu í flokk-
inn var ekki sinnt, vegna þess að
hann gat ekki gefið neina skýringu
á því, hvað orðið hefði um systur
hans, sem horfið hafði á stríðsár-
unum. KGB lét leita hennar innan
Sovétríkjanna, og þeim tókst að
lokum að finna hana. Hún vann þá
sem burðarkona í hafnarborginni
Archangel. Tuomi eignaðist barn
árið 1948 og annað árið 1951, og því
urðu kennslulaun hans sífellt meira
ófullnægjandi. Majorinn bætti þetta
upp með því að gefa honum nokk-
ur hundruð rúblur fyrir hátíðar og
sumarleyfi.
Með sífelldri þjálfun og aukinni
reynslu gerðist Tuomi smám sam-
an mjög slyngur njósnari og sam-
særismaður. Hann hafði marga eig-
inleika góðs njósnara til að bera,
svo sem hugrekki, gáfur, forvitni
og mjög gott minni og svo átti hann
mjög auðvelt með að láta fólki
geðjast vel að sér. Hann var hlát-
urmildur. Það var kímniglampi í
bláum augunum, og viðkunnanleg-
ur og vinalegur andlitssvipur hans
hafði þau áhrif á fólk, að það treysti
honum. Það fór eins um hann og
marga aðra, sem starfa lengi við
njósnir. Honum fór að þykja gam-
an að njósnunum njósnanna vegna.
Sektarkenndin, sem hafði fyrst
gripið hann, er hann tók að svíkja
félaga sína, hvarf smám saman, er
honum fór að takast að líta á sjálf-
an sig sem sannan föðurlandsvin.
Það var aðeins einn maður, sem
hann gat ekki fengið sig til að
svíkja. Það var Nikolai Vasilyevich,
fræðimaður á sviði rússneskra bók-
mennta. Þessi kennari var öllum
mjög ástfólginn vegna kímni sinn-
ar, umburðarlyndis og heiðarleika.
Hann var hár og grannvaxinn, og
framkoma hans einkenndist af
mildi. Hann bjó yfir þeim eigin-
leika mikilla kennara að geta blás-
ið nemendum sínum fróðleiksfýsn
og hrifningu í brjóst. Því var alltaf
þröngt um manninn í tímum hjá
honum. Hann hafði hvað eftir ann-
að neitað að ganga í kommúnista-
flokkinn, og því var hann undir
stöðugu eftirliti KGB. Og í desem-
bermánuði árið 1955 var Tuomi
falið að fylgjast með honum.
í nýársveizlu skömmu síðar
heyrði Tuomi einn nemandann
spyrja Nikolai, hvers vegna hann
hafnaði því að ganga í flokkinn.
„Kommúnisminn er búr,“ svaraði
hann þá. „Ég fæddist ekki til þess
að vera settur í búr. Ég fæddist
sem örn.“
Tuomi lét það undir höfuð leggj-