Úrval - 01.07.1970, Page 112
110
TJRVAL
ensku fékkstu ágætiseinkunn. Ég
óska þér til hamingju. Foringinn“.
Galkin bætti við gleiðbrosandi:
„Ég hef frekari góðar fréttir aðfæra
þér. Fjölskylda þín fær splunku-
nýja íbúð“.
„Það er dásamlegt“! hrópaði
Tuomi. „Geturðu sagt mér frá íbúð-
inni“?
„Ég læt konuna þína um það“,
svaraði Galkin. „Hún kemur með
börnin hingað til Moskvu daginn
eftir morgundaginn. Við höfum til-
búið hús handa ykkur fyrir utan
Moskvu, heilt hús. Eftir vikudvöl
hér farið þið svo öll suður að
Svartahafi og dveljið þar í heilan
mánuð“.
Galkin hafði verið kátur og gam-
ansamur í hlutverki velgerðar-
mannsins. En þegar hann kvaddi
Tuomi, varð hann alvarlegur að
nýju, jafnvel allt að því þunglynd-
islegur. „Þetta verður síðasta tæki-
færi þitt til þess að dvelja óhindrað
hjá fjölskyldu þinni. . . Kannske
líða mörg ár, þangað til þér býðst
slíkt tækifæri að nýju“, sagði hann.
„Þú skalt því nota það út í æsar.
Ég lít til þín öðru hverju, eftir
að þú kemur aftur til Moskvu frá
Svartahafinu. En annar maður tek-
ur við hlutverki mínu. Hann mun
skipuleggja sendiför þína í smá-
atriðum. Þegar hér er komið sögu,
verður ekki aftur snúið með neitt“.
NÝTT LÍF.
Tuomi kom endurnærður og úti-
tekinn úr leyfi sínu. En hann var
líka kvíðinn. Og fyrstu kynni hans
af nýja kennaranum urðu ekki til
þess að draga úr kvíða hans. Hann
heilsaði Tuomi að vísu með handa-
bandi, en algerlega ópersónulega.
„Seztu og taktu eftir því, sem ég
segi“, sagði nýi kennarinn skipandi
rómi. Nafn hans var Dimitri Fed-
erovich Polyakov og var hann
ofursti.
„Sendiför þín hefur þegar verið
ákveðin“, sagði Polyakov. „Þú ferð
til New Yorkborgar og einbeinir
þér að njósnum við höfnina, eftir
að þú hefur komið þér tryggilega
fyrir. Við höfum mjög mikla þörf
fyrir áreiðanlegar upplýsingar án
milliliða um flutning flugskeyta,
annarra hergagna og herliðs um
New Yorkhöfn. Samtímis þessuvið-
fangsefni verðurðu að aðstoða við
tilraunir til þess að afla tengsla við
Bandaríkjamenn, sem líklegir yrðu
til þess að vinna fyrir okkur. Gangi
allt vel fyrir þér, verðurðu kannske
sendur til Washington eða einhvers
annars staðar til þess að stjórna
Bandaríkjamönnum, sem eru þeg-
ar í þjónustu okkar. Skyldustarf
mitt mun verða í því fólgið að
„búa til“ æviferil fortíðar þinnar,
semja „sögusögnina" um þig, þann-
ig að hún virðist trúverðug saga.
Og ég verð einnig að sjá svo um,
að þú munir hvert minnsta smá-
atriði hennar út í yztu æsar. Þar
að auki mun ég kenna þér ýmis-
legt sérfræðilegs eðlis, sem er nauð-
synlegt fyrir þig að læra, eigir þú
að geta unnið skyldustarf þitt með
góðum árangri".
Polyakov var valdsmannslegur og
hrjúfur, en Tuomi geðjaðist samt
að þessum harðgera manni, meðal
annars vegna þess, hversu mikla
fyrirlitningu hann hafði á allri