Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 14
12
ÚRVAL
ekatónlistar", en hingað til hafa
þeir alltaf verið hvítir.
Við flest meiri háttar dagblöð í
Suðurríkjunum eru nú svartir
fréttaritarar eða það er verið að
þjálfa þá til starfa hjá þeim. Flest
dagblöðin birta fréttir um negra á
almennum síðum innan um aðrar
fréttir um hvítt fólk, þ. e. þau hafa
lagt niður hinar hefðbundnu
„niggarablaðsíðu". í þeim birtast
einnig myndir af svörtum brúðum
og fegurðardrottningum.
En negrar í Suðurríkjunum eru
samt haldnir öryggisleysi á mörg-
um sviðum. I mörgum smábæjum
í Suðurríkjunum gætir enn andúð-
ar á þeim og fjandskapar í þeirra
garð. Og enn eru möguleikar á, að
ofbeldi sé beitt, samanber þá at-
burði, er lögreglumenn drápu negra
í Augustu og við Mississippiháskól-
ann í Jackson.
Helzta andstaðan gegn samneyti
negra og hvítra hefur verið á sviði
líkamlegs samneytis, svo sem í skól-
um og opinberum skemmtistöðum,
svo sem íþróttasvæðum, sundstöð-
um, o. s. frv. í sumum bæjum halda
hvítir menn uppi einkaskólum til
þess að komast hjá samskólun. I
öðrum halda þeir uppi sérstökum
bekkjum í samskólum hvítra og
svartra. Og nokkrar opinberar
sundlaugar í Richmond og Jackson
hafa verið „lokaðar" af yfirvöldun-
um árum saman, svo að aðeins tvær
borgir séu nefndar.
Enn búa negrar og hvítir menn í
sérhverfum í Suðurríkjunum eins
og í Norðurríkjunum og iifa lífi
sínu að miklu levti út af fyrir sig.
Og það virðist ekki vera um að
ræða neina meiri háttar viðleitni
negra til þess að breyta þeim að-
stæðum. Mörg glæsileg hverfi fyrir
negra hafa sprottið upp í kringum
eldri og oftast fátækari negra-
hverfi.
Efnahagsástandið meðal negranna
í Suðurríkjunum er mjög glopp-
ótt, þótt það hafi batnað að sumu
leyti. Negrar í Suðurríkjunum
kvarta yfir því, eins og negrar í
Norðurríkjunum gera reyndar einn-
ig, að stefna ríkisstjórnarinnar eða
einkaaðilja sé ekki raunsæ, hvað
útlánastarfsemi snertir, séu starf-
andi eða fyrirhuguð fyrirtæki
negra annars vegar. „Okkur gafst
aldrei tækifæri til þess að byggja
upp það fjármagn og það láns-
traust, sem þeir krefjast til þess,
að hægt sé að veita lán,“ sagði negri
einn í Houston, sem langaði til þess
að stofna fyrirtæki.
Skýrslur sýna, að negrar í Suð-
urríkjunum eru langt á eftir hvít-
um mönnum, hvað tekjur snertir,
og einnig á eftir negrum í öðrum
landshlutum. En það hafa þó orðið
nokkrar framfarið á því sviði. í
Jackson í Mississippifylki, Memphis
í Tennesseefylki og nokkrum öðr-
um borgum hafa negrar tekið að
sér viss störf á síðustu árum, sem
voru áður aðeins ætluð hvítum
mönnum, svo sem opinbera sorp-
hreinsun, o. fl., en hvítu mennirnir,
sem stunduðu þessi störf, hafa
fengið betri störf þess í stað. í
vefnaðariðnaðinum var líka byrjað
að ráða negra, þegar ekki var hægt
að fá nóg vinnuafl með öðru móti.
í Norður-Karólínufylki eru t. d.
20% af þeim 420.000, sem í vefn-