Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 33
WíLLY BRANDT DANSAR Á LÍNUNNI
31
Samherjarnir Schell og Brandt.
konar gagnrýni. (Sem dæmi mætti
taka, að 48% Vestur-Þjóðverja voru
því mótfallnir, að Brandt skyldi
hafa kropið á kné í Varsjá, og
héldu þeir því fram, að þetta hefði
verið „einum of mikið“. En 41%
fannst slíkt aftur á móti hafa ver-
ið viðeigandi). Og leiðin, sem hann
hefur valið, er hættuleg bæði fyrir
Austur-Evrópuríkin sem Vestur-
lönd.
í Austur-Evrópuríkjunum verður
vart við áhyggjur af þeim mögu-
leika, að stefna Brandts muni leiða
til nánari snertingar við Vestur-
lönd en teljast megi hyggileg eða
örugg. Margir leiðtogar kommún-
istaríkjanna óttast, að slík snerting
muni grafa undan því taki, sem
þeir hafa á þjóðum Austur-Evrópu.
Sem dæmi um slíkt mætti taka
óeirðirnar í Póllandi. Harðlínu-
menn, allt frá Austur-Berlín til
Moskvu, munu örugglega benda á
það, að hið nána samband milli
ríkisstjórna Póllands og Vestur-
Þýzkalands hafi átt mikinn þátt í
að valda óeirðum þeim, sem urðu
Wladyslaw Gomulka, leiðtoga
pólska kommúnistaflokksins, að
falli í desember. En í flokki framá-
manna flokksins í öllum Austur-
Evrópuríkjum er líka að finna hag-
sýnismenn, sem halda því fram, að