Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
þér grein fyrir því, að þú ert
svartur?"
Clay Felker, ritstjóri tímaritsins
,,New York“ og einn af nánustu
vinum Frosts, hefur þetta að segja
um hann: „Það þarf hugrekki til
þess að spyrja þeirra spurninga,
sem eru á allra vörum, vegna þess
að fólk er venjulega hrætt við að
koma þannig fyrir, að það virðist
ekki vera sérfræðingar á sínu sviði.
En samt eru það þessar mannlegu
spurningar, sem öllu máli skipta.
Þær spyrja nákvæmlega þess, sem
allir vilja vita.“
Greiðslan til þeirra, sem koma
fram í þáttum Frosts, er að vísu
aðeins 265 dollarar að jafnaði. En
samt lítur gestalistinn þegar út
eins og smækkuð útgáfa af „Hver
er maðurinn?“. Á meðal gestanna
hafa verið þau Coretta Scott King,
Golda Meir, Barry Goldwater, Thor
Heyerdahl, Walter Cronkite, Hu-
bert Humphrey, Olof Palme for-
sætisráðherra Svíþjóðar, Truman
Capote, Fulton J. Sheen biskup og
Hussein konungur í Jórdaníu. Lík-
legasta skýringin á þessum stór-
kostlega hæfileika hans til þess að
draga að sér athyglisverða gesti er
sú, að hann hefur orð á sér fyrir
að vera heiðarlegur og sanngjarn.
90 mínútna samtal Frosts við
Spiro Agnew varaforseta vakti at-
hygli um gervöll Bandaríkin. Cla-
rence Petersen skrifaði um það á
þessa leið í Chicago Tribune: „Eg
held, að ég hafi varla nokkurn tíma
heyrt eins hófsamlegar og sann-
gjarnar umræður um vandamálin
og persónulegar og opinberar skoð-
anir og lífsskoðun manns, nema það
hafi verið í síðasta skiptið, sem ég
horfði á þátt Davids Frosts.“ Það
var augljóst, að Agnew sjálfum
fannst, að hann hefði fengið heið-
arlega og sanngjarna meðhöndlun,
því að hann kom fram í þætti
Frosts öðru sinni og þá andspænis
hörðustu gagnrýnendum sínum, hin-
um uppreisnargjörnu stúdentum.
„AÐ TAKA ÁHÆTTUNA"
David Paradine Frost, sem er
sonur meþódistaprests, fæddist í
apríl árið 1939 í bænum Tenterden
í Kent í Englandi. í skólaumsögn-
um er honum. lýst sem „mjög lif-
andi, skilningsskörpum og ná-
kvæmum nemanda“. Sérstakir
hæfileikar hans sem knattspyrnu-
leikmanns urðu til þess, að hann
var að því kominn að taka tilboði
um að gerast atvinnumaður gegn
33 dollara og 60 centa vikulaunum,
sem voru hærri laun en faðir hans
fékk. En þess í stað keppti hann
um námsstyrk við Cambridgehá-
skóia og hlaut hann.
Þaðan lauk hann B.A.-prófi í
ensku árið 1961. Að prófi loknu
fékk hann starf sem „framleið-
andanemi" við sjónvarpsþáttinn „í
vikunni" hjá einkasjónvarpsfélag-
inu „Rediffusion", og fjallaði þátt-
ur þessi um málefni liðandi stund-
ar. í frítímum sínum skemmti hann
með gamanþáttum á kabaretsýning-
um og í næturklúbbum. Svo kom
hið gullna tækifæri, þegar sjón-
varpsþáttaframleiðandi brezka rík-
issjónvarpsins, Ned Sherrin, sá
hann í kabaretsýningu á „Bláa
Englinum“. Sherrin var þá einmitt
að undirbúa gamanþátt, er bera