Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 24
22
ÚRVAL
spyrja,“ sagði Godfrey, „hvers
vegna ætti konan að hamast við að
taka inn þessa pillu og hætta á all-
ar þessar aukaverkanir, þegar bæði
þú og ég getum farið til læknis og
látið gera á okkur 15 mínútna að-
gerð, sem tryggir það, að við get-
um ekki lengur þungað nokkra
konu en samt notið eins mikillar
kynferðilegrar ánægju og við kær-
um okkur um?“
„Já, það er nú allt gott og bless-
að,“ svaraði Frost þá, ,,en mundir
þú láta gera slíkt við þig?“
Gestur Frosts leit á hann og
sagði: „Á ég að segja þér svolítið
leyndarmál? Ég lét gera það fyrir
löngu.“
Arthur Godfrey er enn að velta
því fvrir sér, hvað fékk hann til
þess að játa það frammi fyrir millj-
ónum áheyrenda og áhorfenda, að
hann hefði verið gerður ófrjór.
Þegar hann er spurður að því, hvað
hafi fengið hann til þess að opin-
bera þetta leyndarmál, verður hann
hugsandi á svip og svarar svo: ,,Eg
býst við, að eina ástæðan geti ver-
ið sú, að David nær svo nánu sam-
bandi við mann í samtalinu, að
manni finnst, að hann sé að tala
við mann í einrúmi og mað-
ur gleymir því algerlega öllu fólk-
inu, sem situr fyrir framan sjón-
varpstækin sín.“
Hvað eftir annað hefur frægt
fólk, sem David Frost hefur átt
samtal við, fallið fyrir þessari
sömu kennd með þeim afleiðingum,
að það hefur tjáð sig á furðulega
hreinskilinn hátt. ísraelski hershöfð-
inginn Moshe Dayan viðurkenndi,
að sér fyndist „stríð vera það mest
spennandi af öllu í þessu lífi“.
Svarti þingmaðurinn Adam Clayton
Powell sagði, og það mátti heyra,
að hann var að gorta: „Ég er eini
Bandaríkjamaðurinn, svartur eða
hvítur, sem er fjandans sama um
allt.“ Jafnvel Theodore Sorensen,
fyrrverandi ráðgjafi Johns Kenne-
dys forseta og gamall vinur allrar
Kennedyfjölskyldunnar varpgði frá
sér sinni venjulegu hlédrægni, þeg-
ar Frost spurði hana í sjónvarps-
viðtali, hvort Edward Kennedy
gæti orðið forsetaefni demokrata
árið 1972: „Nei, það held ég ekki.“
Og svo bætti hún við: „Og eigi ég
að vera mjög hreinskilin, álít ég,
að hann ætti ekki heldur að verða
það.“
„STÓRKOSTLEGT! DÁSAMLEGT!
FURÐULEGT! “
Slík viðtöl hafa hvað eftir ann-
að orðið forsíðufréttaefni þá 20
mánuði, síðan sjónvarps- og út-
varpsfélagið Westinghouse Broad-
casting Co„ sem rekur fjölda sjón-
varps- og útvarpsstöðva, hætti á að
ráða til sín ungan Englending, sem
Ameríkumenn þekktu lítið sem
ekkert, og lét hann fá sinn eigin
90 mínútna sjónvarpsþátt fimm
kvöld í viku. I samkeppni við fræg
nöfn eins og Johnny Carson, Mery
Griffin og Dick Cavett hefur þessi
31 árs gamli Englendingur orðið
frægur um öll Bandaríkin og aflað
sér gífurlega stórs áhorfenda- og
áheyrendahóps. Hann nær til fleiri
manna í Washington, Boston, San
Francisco eða Miami, þ. e. hvar sem
er í Bandaríkjunum, en allir þessir
þrír keppinautar hans til samans.