Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 60
58
ÚRVAL
Washington, auk þess 'sem hann
vinnur við stofnun sína við bar-
áttuna á móti tóbaksreykingum. Þá
vinnur hann með nemendum sínum
við rannsókn fjölda mála.
Hann hefur mælzt til þess við
flugmálayfirvöldin, að í farþega-
flugvélum verði tvö farrými, ann-
að fyrir þá sem reykja og hitt fyr-
ir þá sem reykja ekki. Mörg flug-
félög hafa þegar komið þessu fyr-
irkomulagi á. Nú er Banzhaf tekinn
að berjast fyrir því, að reykingar
verði bannaðar á veitingastöðum og
skrifstofum hins opinbera. „Við er-
um ekki að reyna að spilla ánægj-
unni, sem fólk fær af reykingum.
Við erum hins végar að berjast
fyrir rétti þeirra, sem reykja ekki
til þess að þeir geti verið lausir
við þær hættur og þau óþægindi,
sem fylgja tóbaksneyzlu fólks,“
segir Banzhaf.
Nokkrir nemenda Banzhafs ætla
að reyna að fá því framgengt, að
það verði bannað, að leikfanga-
vindlingar séu með vörumerki
vindlingafjTÍrtækjanna. Aðrir eru
að safna saman staðreyndum, sem
sýna, að sumt fólk geti orðið lík-
amlega háð tóbaksneyzlu, eins og
eiturlyfjasjúklingar eru háðir he-
róini og öðrum eiturlyfjum.
Þá vinna margir nemendur Banz-
hafs saman í litlum hópum við hin-
ar margvíslegustu athuganir. Einn
hópurinn vinnur til dæmis að því,
að fyrirtæki nokkuð, sem framleið-
ir súpur og lét útbúa mjög villandi
auglýsingar um framleiðslu sína,
verði skyldað til að tilkynna, að
súpuauglýsingarnar hafi verið mjög
villandi. Þessir nemendur Banzhafs
vilja að þeirri reglu verði komið
á, að ef fyrirtæki verði uppvíst að
því að birta villandi auglýsingar
um vörur sínar, verði þau skylduð
til að tilkynna, að fyrri auglýsing-
ar hafi verið villandi og gefið
skakka mynd af vörunni. Annar
hópur nemenda Banzhafs vinnur
að því, að framleiðslufyrirtæki
verði látin birta nákvæmari aug-
lýsingar yfir kaffiinnihald drykkja,
sem þau framleiða og hve mikið
magn sé af ómettaðri fitu í tilbún-
um mat, sem þau framleiða.
Banzhaf álítur, að nemendur sín-
ir öðlist mjög dýrmæta lögfræði-
lega reynslu við þessar athuganir,
og einnig að þeir geti með þessum
störfum sínum bætt líf Bandaríkja-
manna. „Ungt fólk, sem ekki er
ánægt með núverandi skipan þjóð-
félagsins, þarf ekki að fara í verk-
fall eða efna til uppþota,“ segir
Banzhaf. „Þessi löglega leið til
þjóðfélagsumbóta er öllum opin. —
Og ennþá er mikið starf óunnið."
☆
Komið er á markaðinn nýtt franskt ilmvatn til heiðurs friðarum-
ræðum Bandaríkjanna og Norður-Vietnama í París. Það ber heitið
,,Eilífð í Parús“.