Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 84
82
ÚRVAL
Kólumbusar geimsins. Jafn ófor-
gengileg er minningin um hinn geð-
þekka persónuleika Júrí Gagaríns,
um hið töfrandi bros hans sem vann
hugi allra.
(Byggt á minningum
N. Kamaníns, Germans Títofs,
Valentíns Gagaríns o. fl.).
★
Öruggasta leiðin til þess að eyðileggja einhverja ánægju fyrir sér er
sú að vænta of mikils fyrir fram. Allt hið bezta í lífinu er ókeypis....
en óvænt.
Sydney J. Harris.
Þegar að því kemur, að allir hér í landi eru orðnir doktorar í ein-
hverju, ,þá mun síðasti öskukarlinn verða forríkur.
Walter Kiernan.
Það, að hafa rétt til þess að gera eitthvað, þýðir ekki hið sama og,
að það sé alltaf rétt að gera það.
Hjónabönd þau, sem við álítum farsælust, eru einmitt þau, jþar sem
báðir aðiljar álita, að þeir hafi nú heldur en ekki dottið í lukkupottinn.
Það, að vera aiger og nákvæm andstæða einhvers, er líka eins konar
eftirlíking.
Jólin eru sá tími, þegar maður fyllist heimþrá — jafnvel þó að
maður sé heima hjá sér.
Maður einn í fjárihættuspilaborginni Las Vegas áleit, að hann hefði
ekki nóg af peningum til þess að leggja þá undir, svo að hann ákvað
bara að fylgjast með „rúlettuhjólinu" og veðja í ihuganum. Hann missti
vitið á örstuttum tíma.
Tékki einn i Prag var að virða fyrir sér tvo bíla, sem lagt hafði
verið þar við torg eitt. Annar var lítill Riolls-Royce, en ihinn litli
Moskvichinn. Maður, sem stóð nærri honum, spurði hann allt í einu:
„Hvorn lízt þér betur á?“
„Moskvichinn, held ég,“ svaraði Ték'kinn.
„Þú þekkir þá ekki vel bíla,“ sagði hinn.
„Ég þek’ki bíla,“ svaraði Tékkinn, „en ég þekki þig ekki.“