Vísir - 17.06.1944, Page 39

Vísir - 17.06.1944, Page 39
VÍSIR ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 39 Saiiiviiiiinftcl. bifreiða§tjora HBETFILL Þar til bifreiðastöðin Hreyf- ill tók til starfa þ. 11. nóv. síð- astliðinn, var þáð miklum örð- ugleikum bundið fyrir almenn- ing hér í bænum, að hafa full- komin not af atvinnu-bifreið- um til fólksflutninga, með því skipulagi, sem verið hafði þá um nokkurn tíma. Voru þessi mál þá í hinum mesta ólestri, svo að til vandræða horfði. Atvinnubifreiðarstjórar mynd- uðu þá með sér samvinnufélag, með það fyrir augum, að-bæta úr þessum ágöllum, því þeim var ljóst, að þetta gat ekki leng- ur svo til gengið. Var stofn- fundurinn haldinn hér í bæn- um þ. 11. nóv. 1943 og voru stofnendur 53 að tölu, allt kunn- ir og ieyndir bifreiðarstjórar. Bifreiðarstjórarnir keyptu bifreiðastöðina Geysi, en þar eignuðust þeir öruggan framtíð- arstað fyrir stöðina, sem er við Arnarhólstún. Stöðin byrjaði með 65 bifreið- ar, en þeim f jölgaði mjög skjótt, svo að á þremur mánuðum voru þær orðnar 110 að tölu, og er það heildartala þeirra nú, eins og sakir standa. Til þess að tryggja það, að bifreiðar væru ávallt til taks, þegar stöðin er opin, var sú regla tekin upp strax og telcið var til starfa, að láta 35 bif- reiðar mæta til vinnu á hverjum morgni, og skiptast bifreiðar- stjórarnir á um þessar morgun- vaktir. Var og skipulögð vinn- an á öðrum timum sólarhrings- ins til samræmis við þá reynslu, sem fengin var og fæst í fram- tíðinni af rekstri stöðvarinnar, með afnotaþörf almennings fyr- ir augum. Eftir því sem bifreiðum fé- lagsins fjölgaði, jókst einnig að mun meðlimafjöldinn, svo sem gefur að skilja, og eni þeir nú 131 að tölu. Stjórn félagsins, sem nú er og kosin var á stofn- fundinum, er þannig skipuð: Bergsteinn Guðjónsson er for- maður félagsstjórnarinnar og framkvæmdast j óri, Ing j aldur Isaksson er varaformaður, Ingv- ar Sigurðsson er gjaldkeri, Þor- grímur Kristinsson ritari og Tryggvi Kristjánsson með- stjórnandi. Með stofnun þessa samvinnu- félags var vissulega stigið langt spor í þá átt, að auka. velgengni atvinnubílstjóra hér i bænum og tryggja þeim hagkvæmari rekst- ur við atvinnuna, enda hafa bif- reiðarstjórar sett sér' það að markmiði, að fólk geti ávallt og hvenær sem er fengið bifreiðar stöðvarinnar til afnota. Má með sanni segja, að hér hafi vel tek- izt að sameina hagsmuni not- enda og eigenda bifreiðanna. Félagar í samvinnufélaginu Hreyfill geta aðeins orðið þeir, sem eru í bifreiðastjórafélaginu Hreyfill hér í bæ, en Bergsteinn Guðjónsson hefir um tveggja ára skeið verið formaður þess félagsskapar, svo að það var alls engin tilviljun, að hann var gerður að framkvæmdarHjóra samvinnufélagsins, þegar það tók til starfa. Má fullyrða, að bifreiðastjórar hafi ekki getað vandað betur til valsins í fram- kvæmdarstjórastöðuna, en þeg- ar þeir kusu Bergstein til þess starfa, svo hæfur og ágætur maður er hann. Þegar bifreiðarstjórar ganga í þefta samvinnufélag, þurfa þeir að greiða kr. 100.00 í inn- tökugjald og síðan kr. 150.00 stöðvargjald mánaðarlega úr því. Er sama stöðvargjald nú greitt á öllum bifreiðastöðvum í bænum. A daginn eru tveir afgreiðslu- menn starfandi á stöðinni og hafa þeir eins og að líkum læt- ur ærið nóg að starfa, þvi oft eru afgreiddar 130—140 ferðir á einni einustu klukkustund. Bifrciðastöðin Hreyfill er nú langstærsta bifreiðastöð á land- inu og um leið sú fullkomnasta. Hefir hún á að skipa hinum elztu og reyndustu bifreiðar- stjórum, sem eru þaulkunnugir vegum og landi. Bifreiðarnar eru allar af nýjustu gerð, út- búnar með nútíma þægindum, svo sem miðstöðvarhitun og út- varpstækjum. Er lagt kapp á að hafa aðeins minni bifreiðarnar á þessari stöð, þ. e. fimm- og sjömanna. Samvinnufélagið Hreyfill hef- ir þegar komið sér upp benzín- sölu við Faxagötu og hefir í hyggju strax og gott tækifæri gefst til að koma sér upp bif- reiðaverkstæði og má búast við því, að þegar fram í sæki verði það stærsta og fullkonmasta verkstæði landsins á þessu sviði, þar sem hvorttveggja í senn, verður gert við bifreiðar og seldir í þær allir hugsanlegir varahlutir. Á því leikur enginn vafi, að almenniugur hér í bæ hefir af heilum hug fagnað þeirri á- kvörðun atvinnubifreiðarstjóra, að taka þá rögg á sig að stofna samvinnufélag i sambandi við bifreiðaakstur í bænum, og munu margir hafa viljað, að fyrr hefði orðið. Kemur þetta til af því, að fólk var oft og einatt í hinum mesta vanda statt, þegar það nauðsyn- lega þurlti á bifreið að halda, en hún var hvergi fáanleg, hversu mikið sem í húfi var. Áð visu voru ekki mikið fleiri bifreiðar í notkun á bifreiða- stöðvunum i heild, i þann tima, þegar „Hreyfill“ var ekki tekinn til starfa, heldur en nú, en reyndin var samt sú, að bif- reiðafjöldinn notaðist ekki eins vel og vera skyldi og vinnu- skiptingunni var ekki nógu hag- anlega fyrir komið á hverri ein- stakri bifreiðastöð, þó vafalaust allt hafi verið gert í þeim efn- um, sem mögulegt var. Þá er það og staðreynd, að í flestum tilfelluin leggja menn meira að sér við vinnuna, þeg- ar þeir vinna fyrir sjálfa sig, heldur en þegar þeir vinna á vegum annarra. Með þessum orðum er alls ekki verið að bera bifreiðastjórum yfirleitt á brýn, að þeir hafi á nokkurn hátt unnið illa eða ver hjá öðrum bifreiðastöðvum, en á sinni eig- in — heldur einungis bent á þá gullvægu setningu, sem hefir sannast hvar og hvenær sem er, fyrr á timum engu síður en nú, að „hver er sjálfum sér næstur“. Bifreiðar „Hreyfils“ við stöðina hjá Arnarhólstúni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.