Vísir - 17.06.1944, Page 85
VÍSIR — ÞJÓfc .ÁTÍÐARBLAÐ
i!
85
Egill Vilhjálmsson h.f
„ALLT Á SAMA STAÐ".
Mynd af fyrirtækinu.
Stór fólksflutningabíll í smíðum 1939.
Fyrirtækið Egill Vilhjálms-
son h.f. er eitt þekktasta verzl-
unarfyrirtæki þessa bæjar, enda
eitt hið stærsta. I sinni grein
er það hið langstærsta hér á
landi.
Fyrirtækið var stofnað 1930
af Agli Vilhjálmssyni. Hann er
einn af fyrstu stofnendum og
aðalhluthöfum í Bifreiðastöð
Reykjavíkur, sem stofnuð var
árið 1921. Mun Egill hafa verið
einn af fyrstu bifreiðarstjórum,
sem óku bifreið í þessum bæ,
enda er ökusldrteini hans núm-
er 3. En Agli nægði ekki að
vera einungis ökumaður. Hann
skildi strax hvaða þýðingu bif-
reiðarnar mundu hafa fyrir Is-
lendinga í framtiðinni og nauð-
syn væri á að bifreiðainnflutn-
ingur til landsins ykist að mikl-
um mun og að vandað yrði til
þeirra tegunda, sem fluttar
væru inn, til að ahnenningur
fengi trú á þessum flutninga-
tækjum. Ýmsar þjóðir voru þá
farnar að framleiða bifreiðar,
en Egill vissi að nauðsynlegt
var að flytja inn tegundir, sem
byggðar væru með notkun í
fjallalandi, svipuð Islandi, fyrir
augum. Italir höfðu um þessar
mundir hafið framleiðslu á bif-
reiðategund, sem var talin end-
ingargóð og vel við hæfi þeirra
samgönguskilyrða, sem eru í
þeirra fjöllótta landi. Á þessari
tegund, er nefndist Fiat og
framleidd var i Torio, hóf Eg-
ill innflutning 1924 og voru það
fyrstu stóru vagnarnir, sem
hér voru í förum og tóku 14
manns í sæti. Þannig liðu nokk-
ur ár. Bifreiðaframleiðslan varð
stöðugt fullkomnari frá ári til
árs í hinum einstöku löndum,
sérstaklega fleygði henni fram
með risaskrefum í Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Á þessum ár-
um fór Egill Vilhjálmsson vest-
ur um haf til að kynna sér
rekstur fullkominna viðgerðar-
stöðva hjá Bandaríkjamönnum,
og eftir að hann kom heim, eða
árið 1927, hóf hann innflutning
á bifreiðum frá Ameríku og hef-
ir alltaf verið umboðsmaður
Studebaker-bifreiða þaðan frá
þeim tíma.
Húsnæði fyrirtækisins.
Jafnframt því, sem notkun
bifreiða og bifreiðainnflutning-
ur óx til landsins, dafnaði fyrir-
tæki Egils og árið 1930 var svo -
komið, að hann gat hvergi feng-
ið leigt nógu stórt húsnæði fyr-
ir það. Hann réðist þá í að
byggja stórt hús yfir fyrirtækið
á Grettisgötu 16. En það varð
strax of lítið. Tveimur árum síð-
ar, eða árið 1932, varð Egill að
byggja nýja byggingu yfir fyr-
irtækið, vegna þess að fyrsta
byggingin var orðin alltof lítil.
I þetta sinn var byggt stórhýsi
á horninu á Laugavegi og Rauð-
arárstíg. Er þetta hið mesta
stórhýsi og áreiðanlega hið
stærsta sinnar tegundar hér á
landi. Er gólfflötur þess um 3
þúsund fermetrar samanlagt. —
Jafnframt því, að byggja þetta
stórhýsi, seldi fyrirtækið bygg-
inguna við Grettisgötu. Síðan
1932 hefir stöðugt verið aukið
við bygginguna við Rauðarár-
stíg. Meðal annars var stórt yf-
irbyggingarverkstæði byggt þar
1938 og 1939 var reist þar
smurningshús fyrir bifreiðar.
Þrátt fyrir allar þessar bygg-
ingar, sem fyrirtækið hefir yfir
að ráða, er húsnæði þess nú
þegar of lítið og er á prjónunvun
að tryggja sér yfirráð og eign-
arrétt á allstóru lóðasvæði á-
föstu við byggingar fyrirtækis-
ins við Rauðarárstíg. Mun gólf-
flötur bygginganna skipta tug-
um þúsunda fermetra, þegar
þær eru fullgerðar.
Starfsemin fyrr og síðar.
Það hefir verið stefna þessa
fyrirtækis frá því fyrsta, að leit-
ast við að hafa á boðstólum sem
flestar þær tegundir af vara- og
viðhaldshlutum til bifreiða, sem
kostur hefir verið á að fá inn-
flutt til landsins. 1 öndverðu
gerði fyrirtækið líka að kjör-
orði sínu m. a.: „Allt á sama
stað“. Má gera ráð fyrir að
þessi viðleitni, ásamt óumdeil-
anlegri vinnuvöndun fyrirtækis-
ins frá því fyrsta, eigi sinn
mikla þátt í vinsældum þess
meðal þeirra, sem þurft hafa að
njóta þjónustu þess fyrr og
síðar.
Verzlun með bifreiðar
og bifreiðahluti.
Það leiðir af sjálfu sér, að
starfsemi fyrirtækisins hefir frá
öndverðu verið afar fjölþætt. 1
fyrsta lagi hefir það rekið mjög
umsvifamikla verzlun með bif-
reiðar og varahluti í bifreiðar.
Er sú deild liin elzta og stærsta
innan fyrirtækisins. Þá hefir
fyrirtækið annazt bifreiðayfir-
byggingar og var eitt af því
fyrsta að hefja slíka starfsemi
hér. Hefir það séð um yfirbygg-
ingar á langflestum bifreiðum,
sem nú eru notaðar í langferðir
úti um land, og einnig fjölda
bifreiða, sem eru notaðar í
styttri ferðir.
Bifreiðaviðgerðir
og málning.
Einn af starfsþáttum fyrir-
tækisins og einn sá elzti, er við-
gerð bifreiða og málning. Hefir
fyrirtækið jafnan haft á að
sldpa færustu mönnúm í þess-
um efnum og jafnan haft mildu
fleiri beiðnir mn bifreiðavið-
gerðir en unnt hefir verið að
komast yfir að sinna, þótt reynt
hafi verið að greiða úr þannig
vandræðum eftir beztu getu af
hálfu fyrirtækisins. Ennfremur
hefir smurningsstöð og benzín-
sala verið rekin á vegum fyrir-
tækisins um langt skeið. Er ben-
zínsala þess með því umfangs-
mesta, sem þekkist á landinu í
þeim efnum. Þá annaðist fyrir-
tækið samsetningu á yfir hundr-
að bifreiðum, sem fluttar voru
inn ósamse.ttar frá Ameríku til
landsins. Reynist sú vinna afar
vel og telur framkvæmdastjóri
fyrirtækisins að vel geti lcomið
til mála að flytja inn fólks-
flutningsbifreiðar þannig ósam-
settar og setja þær saman hér
heima fyrir minna verð en að
kaupa þær fullgerðar erlendis.
Fyrirtækinu
breytt I hlutafélag.
1 marzmánuði 1939 var fyrir-
tækinu breytt í lilutafélag.
Þangað til hafði Egill Vilhjálms-
son verið eigandi þess og fram-
kvæmdastjóri. Hann hefir einn-
ig verið framkvæmdastjóri þess
síðan því var breytt í hlutafélag.
Fyrirtækið veitir nú um 100
manns atvinnu að staðaldri og
er í stöðugum vexti eins og fyrr
er sagt. Þegar styrjöldinni lýk-
ur og auðveldara verður með
ýmsar athafnir á ný mun fyrir-
tækið enn auka starfsemi sína
með nýjum byggingum og fleiri
starfsgreinum. Má því vænta
þess, að sú margþætta þjónusta,
sem það hefir látið viðskipta-
vinum sínum í té fram að þessu,
njóti sizt af öllu minni vinsælda
en verið hefir.
22