Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 1
99. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
45 farast í náttúruhamförum í Oklahoma og Kansas í Bandaríkjunum
Skýstrókar jafna heilu
borgarhverfin við jörðu
Oklahoma. Reuters.
Reuters
BIFREIÐ björgunarmanna keyrir i gegnum Moore, sem var eitt úthverfa Oklahoma-borgar, en var nánast
jafnað við jörðu í náttúruhamförunum í gær. Við hlið bílsins má sjá tré sem veðrið hafði leikið grátt.
AÐ minnsta kosti fjörutíu og fimm
manns fórust þegar öflugir ský-
strókar gengu yfir ríkin Oklahoma
og Kansas í Bandaríkjunum í gær.
Hundraða var saknað eða höfðu
orðið fyrir meiðslum af völdum
náttúruhamfaranna og var óttast að
fleiri fyndust látnir eftir því sem
björgunarstarfi yrði fram haldið.
Verst var ástandið í Oklahoma-
borg og voru heil hverfi þar jöfnuð
við jörðu. Gátu björgunarstarfs-
menn sér þess til að næstum tvö
þúsund heimili hefðu orðið veðrinu
að bráð. Sjónarvottar sögðu að út-
hverfið Moore líktist helst vígvelli,
vegna þeirrar gífurlegu eyðilegg-
ingar sem orðið hafði á húsum og
byggingum. Fjörutíu munu hafa lát-
ist í Oklahoma-ríki og fimm í
Wichita og Haysville í Kansas.
Skýstrókamir gengu yfir Okla-
homa og Kansas á 30-45 mínútum
og sagði Ben Frizzell, hjálparstarfs-
maður í Oklahoma, að sumir ský-
strókanna hefðu verið svo öflugir,
og hefðu skollið á svo snögglega, að
fólk hefði ekki haft nokkurt tæki-
færi til að koma sér í öraggt skjól.
Að sögn Franks Keatings, ríkis-
stjóra Oklahoma, var ekki vitað um
afdrif fjölda fólks.
Engan fslending sakaði
Keating ríkisstjóri lét þess getið
að engar líkur væru á því að hægt
yrði að hefja uppbyggingu í Okla-
homa-borg að nýju án þess að um-
talsverð aðstoð bærist. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti svaraði kalli
Keatings og lýsti yfir neyðarástandi
í Kansas og Oklahoma. Kvaðst for-
setinn finna innilega til með fómar-
lömbum skýstrókanna og lofaði því
að stjórnvöld í Washington myndu
veita alla hugsanlega aðstoð.
Frekari náttúruhamfara gæti
hins vegar verið að vænta því veð-
urfræðingar spáðu áfram slæmu
veðri á þessum slóðum.
Um 200 íslendingar eru búsettir í
borginni Tulsa í Oklahoma og
nokkrir einnig í Oklahoma-borg og í
Kansas. Að því er Morgunblaðið
komst næst sakaði engan þeirra í
ofsaveðrinu. Geirþrúðúr Jónsdóttir,
sem býr í Tulsa, sagði í samtali við
Morgunblaðið að sem betur fer
hefðu engin slys eða skemmdir orð-
ið þar í borg en gat þess að viðbún-
aður hefði verið afar mikill.
■ Talið að/30
Indónesía
Hermenn
fella 28
mótmæl-
endur
Jakarta. Reuters.
HUNDRUÐ hermanna héldu í gær
uppi eftirliti á götum iðnaðarbæjar-
ins Krueng Geukueh í Indónesíu
þar sem hermenn skutu að minnsta
kosti 28 mótmælendur tii bana í
fyrradag.
Bærinn er í Aceh-héraði, sem er
nyrst á eyjunni Súmötra og að
mestu leyti byggt múslimum. I hér-
aðinu hefur lengi verið mikil and-
staða við yfirráð Indónesíustjómar.
Indónesíska fréttastofan Antara
hafði eftir formanni nefndar, sem
rannsakar blóðsúthellingamar í
bænum, að 28 manns hefðu fallið.
Her Indónesíu hélt því hins vegar
fram að 18 hefðu beðið bana og 80
særst.
Wiranto hershöfðingi, yfirmaður
Indónesíuhers, kvaðst harma at-
burðinn og sagði að hermenn hefðu
skotið á mótmælenduma í sjálfs-
vörn. Herinn sagði að hermennim-
ir hefðu hafið skothríðina eftir að
nokkrir mótmælendanna hefðu
skotið á þá. Nokkrir sjónarvottar
sögðu hins vegar að skothríðin
hefði hafist eftir að nokkrir mót-
mælendur hefðu grýtt hersveitirn-
ar til að hefna sín á hermanni, sem
kastaði grjóti á þá.
Aceh hefur í reynd verið undir
stjóm hersins mestan hluta áratug-
arins vegna aðgerða hans gegn að-
skilnaðarsinnum, sem hafa látið að
sér kveða í héraðinu. Aðgerðum
hersins lauk í fyrra en íbúar hér-
aðsins hafa risið upp á síðustu mán-
uðum og mótmælt grimmdarverk-
um hersins á valdaskeiði hans.
Tony Blair um stríðið í Júgóslavíu
Lofar að binda
enda á þjóðar-
morð Milosevics
Reuters
KOSOVO-Albani hvílir lúin bein í Cegane-flóttaniannabúðununi í Mak-
edóníu í gær en þar beið fólkið í biðröð eftir ýmsum hlífðarflfkum.
Heppin
en van-
þakklát
Amsterdam. Reuters.
TVÆR ætimyndir eftir hinn
fræga listmálara Rembrandt,
sem keyptar vora nýlega á
hollenskum flóamarkaði íyrir
86 íslenskar krónur, hafa ver-
ið seldar þýskum málverka-
safnara fýrir hálfa fjórðu
milljón króna.
Hollenska blaðið Algemeen
Dagblad sagði frá þessu í gær
en það er langt í frá, að selj-
andinn, kona nokkur í
Utrecht, sé ánægð með af-
raksturinn. Hún hafði gert sér
vonir um að fá rúmlega fimm
millj. kr. fyrir myndimar.
„Þegar ég fór fram á um-
boðslaunin, þrjú prósentin,
varð fjölskylda hennar brjál-
uð og hótaði mér misþyrm-
ingum,“ sagði listaverkasal-
inn, sem hafði milligöngu um
söluna. „Eg hef ákveðið að
gleyma þessum peningum, ég
kæri mig ekki um neinar bar-
smíðar."
Búkarest, Brussel, Washington. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, lofaði því í gær að Atlants-
hafsbandalagið (NATO) myndi binda
enda á hið „hræðilega þjóðarmorð"
sem Slobodan Milosevie, forseti
Júgóslavíu, hefði staðið fyrir í
Kosovo. Á sama tíma viðurkenndi
Klaus Naumann hershöfðingi, sem
nú hefur látið af störfum sem forseti
herráðs NATO, að bandalagið hefði
ekki ígrundað hemaðaráætlanir sín-
ar í Júgóslavíu nægilega í upphafi.
NATO hefði ekki beitt nægilegum
herstyrk strax í byrjun og hefði ekki
gert sér far um að grípa til hernað-
araðgerða sem komið hefðu Serbum
í opna skjöldu og valdið uppnámi hjá
stjórnvöldum í Belgrad.
Dagblaðið The Financial Times
hefur í dag, miðvikudag, eftir hátt-
settum fulltrúum innan Júgóslavíu-
stjórnar að MUosevic hugleiði nú að
heimila fámennum gæslusveitum á
vegum Sameinuðu þjóðanna að koma
til Kosovo. Þótt ólíklegt sé að NATO
telji Milosevic með þessu ganga
nægilega langt er engu að síður um
nokkra stefnubreytingu að ræða. Bill
Clinton forseti Bandaríkjanna hafði
aukinheldur sagst reiðubúinn að
hugleiða aliar tilraunir til að leysa
deiluna áður en hann hélt af stað í
tveggja sólarhringa Evrópufor í
gærkvöldi.
Umræðan um landhernað skaut
aftur upp kollinum í gær en Nau-
mann hershöfðingi sagðist ekki sjá
ástæðu til þess að efna til landhern-
aðar í Júgóslavíu á þessu stigi. Á
sama tíma felldi Bandaríkjaþing
lagafrumvarp sem hefði veitt Bill
Clinton Bandaríkjaforseta rétt til
„allrar nauðsynlegrar valdbeiting-
ar“, þ.m.t. landhemaðar. Hvíta húsið
hafði lýst sig andsnúið framvarpinu.
Engar vísbendingar voru um að
árangur hefði náðst í viðræðum Vikt-
ors Tsjemómýrdins, sendimanns
rússneskra stjómvalda í deilunni um
Kosovo, við bandaríska ráðamenn í
gær og fyrradag. Þreifingar héldu
þó áfram og þýsk stjórnvöld til-
kynntu að utanríkisráðherrar
Tengslahópsins svokallaða, sam-
starfsnefnd sjö helstu iðnríkja heims
og Rússa, myndu hittast í Bonn á
morgun til skrafs og ráðagerða.
í Brussel neituðu fulltrúar NATO
hins vegar staðhæfingum Serba um
að herþotur bandalagsins hefðu ráð-
ist á fólksflutningabifreið í Vestur-
Kosovo á mánudag með þeim afleið-
ingum að sautján létust. Gáfu tals-
menn NATO í skyn að liðsmenn
Frelsishers Kosovo (UCK) hefðu
staðið fyrir árásinni en talsmenn
UCK sögðu að rútan hefði verið
mannlaus, þar hefði enginn fallið og
að um blekkingar serbnesku lögregl-
unnar hefði verið að ræða.
■ Sjá uinfjöllun á bls. 31-32.