Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AFNAM
SKATTAMISRÉTTIS
TIMI ER fyrir löngu kominn til að afnema það misrétti
í skattalögum, að persónufrádráttur einstaklinga í
hjónabandi er ekki að fullu millifæranlegur. Nú er aðeins
80% persónuafsláttar þess hjóna, sem minni hefur tekj-
urnar, millifæranlegur til frádráttar. Þetta ákvæði bitnar
fyrst og fremst á fjölskyldum, þar sem annað hjóna hefur
ekki nægar tekjur til að nýta sér persónufrádráttinn að
fullu. Hafí hjónin bæði nógu háar tekjur fær hvort fyrir
sig að sjálfsögðu fullan frádrátt. Því má ætla, að þetta
ákvæði bitni fyrst og fremst á fjölskyldum, sem minnstar
hafa tekjurnar. Slíkt er óviðunandi. Margsinnis hefur
komið fram, m.a. hjá kirkjunnar þjónum, að staða hjóna-
bandsins er svo veik, að fólk skilur stundum til að bæta
stöðu sína fjárhagslega með tilliti til skattamála og bóta-
kerfísins. Það telst varla fjölskylduvænt umhverfí.
Davíð Oddsson forsætisráðherra lýsti því yfir á kosn-
ingafundi á Eskifírði nýlega að stefna beri að því að gera
skattfrádrátt hjóna millifæranlegan að fullu. Þessi yfir-
lýsing forsætisráðherra er fagnaðarefni og gefur vonir
um, að þetta skattalega misrétti, sem sum hjón búa við,
heyri brátt sögunni til.
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA
OGKEA
KAUPFÉLAG Þingeyinga og Kaupfélag Eyfírðinga
hafa ákveðið að sameina matvöruverzlun sína í
rekstri Matbæjar ehf. Jafnframt segja forystumenn félag-
anna að þetta sé fyrsta skrefíð í átt að frekara samstarfi
og er stefnt að samruna kaupfélaganna síðar. Rekstur
Matbæjar ehf. mun verða í höndum KEA.
Það er ánægjulegt, að kaupfélögin hafí kjark til að gera
nauðsynlegar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi sínu.
Sameining þeirra mun áreiðanlega koma viðskiptavinum
þeirra til góða. Með sameiginlegum innkaupum nást hag-
kvæmari innkaup, sem lækka munu verðlag í kaupfélags-
verzlunum.
Þessi ákvörðun hefur áreiðanlega verið erfíð fyrir
stjórnendur Kaupfélags Þingeyinga, sem á sér merkilega
sögulega fortíð og þá ekki síður fyrir marga félagsmenn í
Kaupfélagi Þingeyinga. Það er hins vegar hægt að rækta
tengslin við fortíðina án þess að verða fangi hennar.
Merkileg saga má ekki verða gamalgrónum fyrirtækjum
fjötur um fót.
Forráðamenn Kaupfélags Þingeyinga hafa horfzt í
augu við þennan veruleika og hafa tekið rétta ákvörðun
með þessu samstarfi og væntanlegri sameiningu.
RETTLÆTISKENND
FÓLKS
ISAMTALI við Morgunblaðið í gær gengur Halldór As-
grímsson, formaður Framsóknarflokksins, lengra til
móts við sjónarmið gagnrýnenda óbreytts kvótakerfís en
hann hefur áður gert. Hann segir m.a.: „Við getum hins
vegar ekki litið fram hjá því að mörgum svíður það, þegar
aðilar fara út úr greininni með hundruð milljóna króna í
hagnað. Það særir réttlætiskennd fólks. Ég get ekki ann-
að en viðurkennt að þetta er galli. Ég hafði aldrei gert
mér grein fyrir því að veiðiheimildirnar yrðu verðlagðar
svo gífurlega hátt sem raun ber vitni. Það hefur því farið
fram mikil umræða um þetta innan Framsóknarflokks-
ins.“
Og formaður Framsóknarflokksins segir ennfremur:
„Ég tel líka að það geti alveg komið til greina að sjávarút-
vegurinn taki meiri þátt í sameiginlegum kostnaði þjóðar-
innar, m.a. með því að ríkið selji einhvern hluta af veiði-
heimildunum en það verður að gerast með þeim hætti, að
sjávarútvegurinn geti staðið undir því.“
Morgunblaðið fagnar þessum ummælum Halldórs Ás-
grímssonar.
Flóttamannabúðirnar í Makei
BELE Gashi, sjötugar fjölskyldufaöir, liggur fyrir framan tjaldið þar sem hann og hans fólk hefst við í Blace-flótta
Kosovo. Gashi er sjötugur. Margir karlmenn úr fjölskyldu hans urðu eftir í Kosovo; serbneski herin aðskildi fóll
Hypjið ykkur til Alli
anfu - NATO getur
varið ykkur þar
Tugir þúsunda Albana frá Kosovo eru nú í
flóttamannabúðum í grennd við Skopje, höf-
uðborg Makedóníu. Skapti Hallgrímsson
blaðamaður og Sverrir Vilhelmsson ljós-
myndari fóru í tvennar búðir í gær til að
kynna sér ástandið og ræða við fólk sem
hrakist hefur að heiman og hefur ekki
hugmynd um hvað bíður þess.
ERFITT er að ímynda sér líf
í flóttamannabúðum áður
en fólk uppliflr það sjálft að
koma á slíkan stað. En
þegar sú stund rann upp í gær var
samt einhvem veginn eins og
ástandið væri ögn skárra en maður
reiknaði með, einhverra hluta vegna.
Vissulega eru aðstæður hálf ömur-
legar, en ef til vill virðast þær jafn
sæmilegar og raun ber vitni vegna
þess að fólk reynir flest að bera sig
vel; reynir að láta aðstæður ekki slá
sig út af laginu. Blace eru fyrstu
búðimar við landamæri Makedóníu
og Kosovo og þar hafa sumir flótta-
mannanna viðkomu; dveija þá í þrjá
til fjóra daga þar til haldið er annað.
Öðmm er ekið rakleitt í aðrar búðir.
Meðan Morgunblaðsmenn stöldmðu
við í Blace í gær var þar löng röð af
langferðabifreiðum, fullum fólks sem
nýkomið var að handan, og leiðin lá
að Cegrane, nýjustu búðunum sem
em í rúmlega klukkustundar fjar-
lægð.
Það sem blasir við gestum í Blace-
búðum er eymd og fátækt. Komið
hefur verið upp tjöldum, þar sem
eru teppi og dýnur, fólk situr og
reykir eða talar saman, vafrar um.
Hefur ekkert við að vera í raun
nema að draga andann. Og foreldr-
amir að hugsa um bömin sín vita-
skuld. Mikið er af þeim, en sum urðu
eftir, að sögn sumra feðra og mæðra.
Fjölskyldur splundmðust líka. Ser-
bneskir hermenn skildu karlmenn
frá eiginkonum og bömum á leið
þeirra frá heimabæjum til Makedón-
íu.
Hvað bíður okkar?
Eftir að hafa dvalið þar um stund
halda gestimir frá Islandi á brott, en
„íbúamir" komast hvergi. Verða að
bíða og sjá hverju fram vindur.
Framtíðin er óljós; fyrir sumum sem
við hittum á eflaust að liggja að fara
úr landi - jafnvel til Islands - en aðr-
ir eiga eftir að búa við svipaðar að-
stæður næstu vikumar. Jafnvel
VETON Lika, sem er átta ára gamall,
mánuði. Hver veit? Fólk vonar það
besta, en segist í raun ekki einu sinni
geta leyft sér að huga að framtíðinni
strax. En greinilega er vilji flestra sá
sami: að komast aftur heim til
Kosovo. En ekki er hægt að segja að
sérstök bjartsýni fylgi þegar þeir
upplýsa það.
Þeir
Þeir. Þetta orð hefur greinilega al-
veg sérstaka merkingu í munni Al-
bananna frá Kosovo í flóttamanna-
búðunum hér í Makedóníu. „Þeir“
era Serbar; yfírleitt lögreglan og
herinn en þannig nefndu þeir einnig
oft almenning, fyrrverandi nágranna
sem gengu í lið með yfirvaldinu, að