Skírnir - 01.01.1873, Page 19
ALMENN TÍÐINDI.
19
vinnumaSur, en hefur komizt undir dálítil efni með sparneytni og
frábærri ifjusemi. Tómstundum sínum öllum varSi hann til aS
lesa góSar bækur. SíSan varð hann meþódistapostuli. Hann
er aS alinanna rómi heiSvirSasti maSur, en enginn flysjungur eSa
æsingaglanni, eins og opt á sjer staS um verkmannapostula. Hann
átti málstefnur viS verkafólk víba um land, og leiS eigi á löngu
áSur komiS væri á fót geysimikiS fjelag af sveitaverkmönnum, í
líking viS verkmannafjelögin í borgunum. Prjedikanir hans voru
aS því leyti ólíkar prjediknnum annara verkmannapostula (sósí-
alista), aS hann rjeSi verkmönnum til aS fara meS lagi og nær-
gætni aS húsbændum sínum. SagSi ósæmilegt aS leggja niSur
vinnu, er mest lægi á uiá uppskerutímann og láta korniS fúna
niSur á ökrunum. þetta hóglæti og stilling varS til ,þess, aS
margt stórmenni varS verkmönnum heldur sinnandi og studdi mál-
staS þeirra. MikiS hefur reyndar ekki orSiS ágengt enn, sem
ekki er heldur von á jafn-skömmum tíma. En margir spá, aS þessi
samtök muni leiSa eptir sjer mikil tíSindi. J>a5 er ekki aS hugsa
til, aS kjör sveitafólks á Englandi verSi bætt meS öSru móti, en
breyting sje gjör á fasteignalögum Englendinga. En aS slíkt gangi
ekki orSalaust af, má nærri geta, þar sem fasteignaskipunin á svo
djúpar rætur í þjóSlífi og fjelagsskipun þeirra. þótt sum blöS
þeirra sjeu farin aS leggja þaS til, aS fasteignir allar sjeu losaS-
ar úr eignarbandinu viS lendbornar ættir, og frumgetningarrjettur
úr lögum numinn, á þaS langt í land, aS slíkar skoSanir rySji
sjer svo til rúms meSal þorra manna 1 landinu, aB slíkri byltingu
yrSi fram komiS, og þar kæmist upp regluleg bændastjett, sem
er þjóSfjelagsstólpi í hverju landi. þaS sem i öSrum löndum
eru sjálfseignarbændur, eru á Englandi tómir leiguliSar, því lendir
menn eiga nálega allar fasteignir. GreiSa leiguliSar þeim afar-
hátt eptirgjald eptir jarSirnar, og eru þess vegna ekki færir um
aS gjalda verkafólki sínu almennilegt kanp. — SíSan hreifingin
komst á landvinnumannalýSinn á Englandi, eru postular sósíalista
farnir aS bera niSur á landvinnufólki í öSrum löndum (Holtseta-
landi, Pommern og Meklenburgj og munu fráleitt vinna fyrir gýg
þar heldur en í borgunum.
2*