Skírnir - 01.01.1873, Side 32
32
ALMENN TÍÐINDI.
Jieirra er Nordensköld prófessor, og hefur nú fariS raargar ferSir
norBur um Grænland og Spitzbergen. IíostnaBinn til þeirra hafa
lagt fram kaupmenn nokkrir auSugir í Gautaborg. í fyrra vor
fór hann enn á ný á þremur skipum norBur í haf. Hafði stjórnin
lagt til tvö skipin, 1(Polhem” og i(Gladan”. Var útbúnaður allur
sem beztur og traustastur, og var áform Nordenskölds aB hafa
vetrarsetu á Parry-ey, fyrir norBan Spitzbergen. þegar voraBi (nú
í vor) ætlaði hann að fara á sleBum um landnorBurhlut Spitzbergens
og kanna þar landslag. FreistaB skyldi og, ef komizt yrBi á
sleBum eitthvaB norBur eptir ísnum í norBur frá Spitzbergen.
Til aB beita fyrir sleBana höfBu þeir Nordensköld meB sjer
hreindýr. En þau struku frá þeim, þegar norBur kom á Spitz-
bergen; verBur því minna úr sleBaförinni en fyrir var hugaB.
þegar siðast frjettist sátu þeir í vetrarbúBum Svía á Spitzbergen,
þar sem heitir Isafjörður og leið vel. Halda menn þeir muni, ef
til vill, hafa orBiB aB taka þar á móti gestum allmörgum; en
það eru norskir selveiðamenn, sem urðu innifrosta þar 1 haust.
Sendu Norðmenn hvort skipið á fætur öðru aB reyna að ná þeim
þaðan, því að menn óttuðust, að þeir kynnu að verða bjargar-
lausir, en ekkert þeirra fjekk brotizt gegnum ísinn. Eiga sela-
menn því líklegast líf sitt undir því, aB þeim takist aB finna
Svía. — ABrir ötuíástir norðurfarar en Svíar eru nú þjóð-
verjar og Austurríkismenn. Frá Grænlandsferðum þeirra undan-
farin ár er sagt áBur í þessu riti. í sumar er var gjörðu Aust*
urríkismenn út með almennum samskotum ísdreka mikinn, er ((Te-
gethoff” heitir. Hann var allur járnvarinn og hinn ramgjörfasti.
Prayer og Weyprecht heita stýrimenn, fullhugar miklir og vanir
norðurfcrðum. þeir ljetu í haf frá Brimum í miðjum júnímánuði,
höfðu með sjer vistir og annan útbúnað til þriggja ára og ætluðu
að Veyna að komast norðan um Austurálfu, halda síðan suður
um Beringssund og heim hina syðri leið. Skyldi þeir kanna
norðurstrendur Siberíu og Wrangelsland, ef auðið væri. þá leið
hefur enginn komizt enn. Af ferðum þeirra hefur það spurzt
síðast, að þeir sætu ístepptir á Nowaja-Semlja. — þriðja leið-
angurinn gjöiðu Rússar út í fyrra sumar til að kanna norður-