Skírnir - 01.01.1873, Síða 36
36
ALMENN TÍÐINDI.
gjöröar me8 undarlegum hætti: úr brenndum tigulsteini með fleyg-
letri <á. Frásagan er reyndar eigi alvee eins og í biblíunni, en
þó svo lík, aS bvorartveggja sagnirnar eru sjálfsagt af sömu rótum
runnar. Nói er þar látinn heita Sisit. Kappi sá, er Isdubar
heitir (sama og Nimrod) er látinn spyrja Sisit, hvernig á því
standi, aS hann sje ódauSlegur. Segir Sisit þá, aS guSirnir hafi
boSiS sjer aS smiSa skip til aS bjarga sjer á í flóSinu. Ekki
rigndi lengur en í 6 daga; þá var flóSiS fullvaxiS. FjalliS, sem
örkin staSnæmdist á, er látiS lieita Nizir. Eptir 7 daga sendir
Sisit út af örkinni dúfu, síSan svölu og síSast hrafn. Hann kom
ekki aptur. Búast margir viS, aS þetta leiSi eptir sjer fleiri
merkilega fundi þar austur frá. — Á fundinum í Brussel voru þeir
Worsaae og Steenstrup frá Danmörku, Nilsson frá SvfþjóS,
Quatrefages frá Paris og mörg önnur stórmenni í fornum fræSum
frá Frakklandi og víSar aS. Næsta fund á aS balda í Stokkhólmi
aS tveim árunr liSnum.
Af fundahaldi öSru má nefna hagfræSingafund í Pjetursborg.
Hann sóttu hagfræSingar úr öllum löndum álfu vorrar og úr Yestur-
heimi. Vænta margir mikils árangurs af slíkum fundum. í Paris
var haldinn fundur útaf breytingum á vog og mæli og um aS koma
sem víSast á mæli Frakka. Hann var og allfjölsóttur. ÍKaupmanna-
höfn áttu lögfræSingar af öllum NorSurlöndum fund meS sjer í fyrsta
skipti til aS ráSgast um hvernig fara ætti aS koma á áþekkum lögum
um öll NorSurlönd. þar áttu og fund þjóSmegunarfræSingar af
öllum NorSurlöndum. Eitt af því, er þeir urSu ásáttir um, var
aS taka skyldi upp um öll NorSurlönd gullpeninga í staS silfur-
peninga, aS dæmi hinna stærri þjóSa. þó skyldu mótaSir
smápeningar úr silfri eins og áSur. Skyldi ein tegund peninga
ganga um öll ríkin. Var síSan skipuS nefnd í máliS af stjórnend-
um allra ríkjanna, og frumvarp liennar síSan boriS undir þing
hvers rikis til samþykktar og staSfestingar. En ekki er þaS komiS
í kring enn þá.
Af sýningum var og haldiS ekki allfátt áriS sem leiS.
þar skal fyrst nefna JSnaSar- og listasýning NorSurlanda”, er
stóS í Kaupmannahöfn frá því í miSjum júnímánuSi til október-
loka. þótti allmikiS til kennar koma. SvipaSar sýningar voru