Skírnir - 01.01.1873, Blaðsíða 68
68
FRAKKLAND.
komið. ViS l>etta gekkst þingmönnum hugur svo mörgum, ab
Thiers fjekk þau svör er haun óskabi, en þó meS litlum atkvæða-
mun; svo var einvaldsmönnum flestum orðib gramt í gebi vib
hann, ab þeir ætlnSu aS láta hann fara, þótt bæSi þéir og aSrir
mættu ganga aS því vísu, aS þá yrSi upphlaup. FagnaSi lýSurinn
mjög þe3sum málalokum, því aS honum var fariS aS verSa órótt
útaf rifrildinu í Versölum, og var reiSur orSinn þinginu fyrir
þjark þess og þrákelkni. Reyndar hafa Frakkar fengiS þaS orS
á sig, aS þeim yrSi ekki mjög felmt viS óspektir og byltingar,
en þann vitnisburS eiga þeir engan veginn skiliS allir í einu lagi.
Meginþorri þjóSarinnar, og þar á meSal allur bændalýSurinn og
sömuleiSis efnamenn í borgum og kaupstöSum, eru allra manna
fegnastir friSi og spekt; þeir eru starfsamir og reglusamir, og
megi þeir vera óhultir um eigur sínur, þurfi ekki aS óttast
óspektir e' a stjórnleysi í landinu, og haldist vörur þeirra í háu
verSi, gildir þá alveg einu hverju fram vindur, og láta sig stjórn-
armálefni engu skipta. J>eir hafa beztu trú á, aS landstjórn sje í
eins manns höndum og eru ánægSir meS hann, ef hann er nógu
stjórnsamur; hitt hefur þeim aldrei reynzt eins vel; fyrir því undu
þeir svo lengi viS stjórn Napóleons þriSja, og fyrir því æskja þeir
nú heizt aS Thiers fái einn öllu aS ráSa, og þaS því fremur sem
stjórn hans er laus viS flesta bresti keisarastjórnarinnar. En hins
vegar er og til á Frakklandi fólk af öSru sauSahúsi, en sá flokk-
urinn er langtum fámennari. En hann hefur svo hátt um sig, að
hinna gætir varla, og fyrir þá skuld er það, aS öll þjóðin hefur
fengiS á sig þetta óspektarorS. þaS er skríllinn í París og
kaupstöSunum útum landib, og þeir sem iiafa sjer aS atvinnu
aS æsa hann. þessir menn una aldrei betur hag sínum en þeg-
ar allt er í uppnámi og óstjórn; þáhugsa þeir sjer aS hreifings aS
maka krókinn; stendur spektarfólkinu ftf þeim mesta ógn, vilja láta
hafamestau semhemil á þeim og gruna nálega hvern frjálslyndan
mann um mök viS þá. Beri tíSindi ab höndum, er byltingar-
lýðurinn þcgar til taks, en hinir afskiptalausir; hefur honum fyrir
þá sök tekizt þrásækilega aS stofna til verstu vandræða og leitt
óhamingju yfir alla þjóBina.