Skírnir - 01.01.1873, Side 101
AUSTURKÍKI.
101
Austurriki.
Síöan ríki þetta var helmingaö milli þjóÖverja og Magyara
(1867), hefur fariÖ vel á meÖ t>eim, og hvorir lofaÖ öörum a8
búa svo sem þeim bezt líkar viÖ þjóÖir þær, er forustu Jieirra
eiga aö hlíta hvorra um sig; en þær eru flestar af Slafakyni, og
þvi óæöri verur í augum þjóöverja aÖ minnsta kosti. Magyarar
mega þó njóta þess sannmælis, aö þeim er enganveginn eins
gjarnt til aö níöast á þjóÖerni samþegna sinna í þeirra ríki eÖa
sitja yfir rjettindum þeirra, og þjóöverjum er, þar sem þeir mega
því viö koma. Magyarar hafa fólksmegin (bl/i milj.) langt fram
yfir bæöi Slafa (4 milj.) og Rúmena (3 milj.) hvora fyrir sig, og
marga hluti aöra má telja til þess, aö maklegt sje og skaplegt,
aö þeir hafi forustu fyrir þjóÖunum austan Leitar. Vestan Leitar
(i vesturdeildinni ríkisins) búa 8 milj. þjóÖverja, en 12 milj. Slafa
og þó hafa þjóÖverjar þar forustusess og róa öllum árum aö því,
aö Slaf'ar komist aldrei hærra en aö vera þegnar sínir, þ. e.
þeguar þegnanna. Slafar eru aÖ vísu harÖir í horn aÖ taka, og
hafa einráöiö aö láta ekki rjett sinn fyr en í fulia hnefana; en
hingaö til hefur j>jóöverjum jafnan tekizt aö koma svo ár sinni
fyrir borÖ, aö hinir hafa ekki mátt rjetta hluta sinn. Ber margt
til þess, en þaÖ þó helzt, aö Slafar eru eigi allir á einu bandi,
heldur fer hver þjóÖdeild þeirra sjer (Czechar, Pólverjar, Rúthen-
ar og Suöurslafar o. s. frv.) og æskir sjálfsforræÖis hvor í sínu
lagi; annaö þaÖ, aÖ keisarinn (Jósef) er atkvæÖalítill maöur, góð-
gjarn aÖ vísu, en hverflyndur og leiðitamur þýzkum ráðanautum.
Hefur nú um langan tíma ekki orðið annað sögulegt í Austurríki
en viðskipti þessara tveggja þjóðflokka, og er sama máli að gegna
um árið sem leið.
í Austurríki (vesturdeildinni, ^hjernamegin Leitar”) er stjórn
hagað á þá leið, að ríkisþing í tveim deiidum hefur yfirstjórn
ríkisins með keisara og ráðaneyti hans, en hjeraðsþing (lands-
þing) er í hverju hinna seytján „krúnulanda”, er rikinu er skipt
í; hafa landaþing þau forræði þeirra mála, er hvert lánd varðar