Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Síða 61
61
6642. 13/5
6643. 28/5
6644. —
6645. —
6646 */•
i n s samandregin í; greinar út frá; svipað verk og er
á nr. 6632—40. L. 78 sm., br. (h.) 27,6 sm., þ. 2,5 sm.
Alt þetta framantalda skurðverk er úr Ingjaldshóls
kirkju hinni gömlu og miklu, er næst var á undan
steinkirkju þeirri er nú er þar. Var sú kirkja mjög
skreytt innan með margs konar útskurði að sögn og hefir
hann í fyrstu verið skrautlega málaður, rauður og blár,
en síðan hefir verið strokið ljósgráum farfa yfir alt sam-
an. Það er í íslenzkum stíl og að líkindum skorið af
lærðum eða mjög æfðum tréskurðarmanni. Að sumu
leyti virðist það bera svip af endurlifnunarstíl og jafn-
vel skábogastíl.
Gömul kona i Gufudal: Kaffislceið úr tambaki, líklega
ensk og allgömul. L. 13,1 sm., br. blaðsins mest 2,8
sm.
Björn Magnússon, Hofi á Kjalarnesi: Brot ur steinkeri,
hluti af botninum við löggina, og má sjá að kerið hefir
verið kringlótt og botninn um 22 sm. að þverm. að inn-
anverðu, og hefir kerið víkkað uppeftir. Það hefirverið
þunt, 0,6—0,8 sm. við botninn og hann í miðju 0,6 sm.
eða ininna, en útvið laggirnar alt að því 2 sm. sum-
staðar. Steinninn er gráleitur og fremur mjúkur, eins
konar tálgusteinn, líklega ekki íslenzkur (norskur?).
Neðan á botninum er svört hrimskán og hefir kerið
verið haft til að sjóða eða bræða í. Hefir verið fremur
vel gert og er varla yngra en frá landnámatíð.
Sami: Galtarvígtönn, 1. 9,8 sm. að utan. Fornleg en
ófúin.
Sami: Smásteinn svartur og með silfurgljáa á, harður,
óreglulega myndaður; þ. 8 gr. Líklega einskonar »nátt-
úru-steinn«. — Þessir 3 hlutir fundust á Hofi í fornum
öskuhaugi.
Bakstursöskjur úr silfri, kringlóttar, þverm. 7,4—7,7 sm.,
hæð með lokinu 3,2 sm.; lok og botn standa út fyrir og
eru randirnar beygðar reglulega upp og niður í smá-
bárur; þverm. 8—8,1 sm. öskjurnar eru ágætlega drifn-
ar umhverfis og á loki, rósastrengir með blöðum og
blómum í skábogastíl. Á miðju loki er sléttur, lítið eitt
hvelfdur flötur og grafið á hann NHRS Anno 1699, upp-
hafsstafir gefandans. Xeðan á botninum er tvísettur
stimpill smiðsins, virðist vera I og S, öfugt, samandreg-