Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Qupperneq 69
69
6685. m/g
6686. —
6687. V?
6688. ls/7
6689. —
6690. 8/o
Patlnudúkur úr rauðleitu silki með hvítu silkifóðri, fer-
skeyttur, 16 sm. á hvern veg. I miðju er saumaður
blómsveigur og IHS með 1767 undir innan í hann, en
í öll hornin eru saumuð blóm. Saumurinn er með ýms-
um litum, sem nú eru fölnaðir; mest grænleitur. Um-
hverfis eru mjóir kniplingar.
Skírnarfat úr látúni, þverm. 43,3 sm., hæð um 5,5 sm.
Barmar 5 sm. að breidd, með litlum blómum slegnum
á. Fyrir innan þá og neðan eru blöð eða belgir um-
hverfis. Á botninum er líkur krans í miðju og 2 letur-
línur umhverfis; í hinni innri er sama áletrun, með
hinum ólæsilegu, útflúruðu, gotnesku stöfum, endurtekin
5 sinnum, 7 stafir; í hinni ytri er önnur áletrun endur-
tekin 5 sinnum, og fyrstu 2 orðin í henni endurtekin
enn einu sinni að auk; er hún með upphafsstöfum:
ICIIWART:DER:INFB,IDG. Virðist vera upphaf þýzkr-
ar setningar. Sbr. nr. 6571 o. fl.
Þessir 4 síðasttöldu kirkjugripir eru frá Stórólfs-
hvolskirkju.
Matskeið úr silfri, með hinu algenga »empire«-lagi og
grefti á skaftinu. L. 20 sm. Neðan á skaftið er settur
stimpill smiðsins, IIO og ártalið, 18 fyrir l'raman og 19
fyrir aftan. Þyngd 32 gr. Sbr. nr. 4470.
Ingvar Sigurðsson í Laugardalshólum: Járnístöð gömul,
líklega fi'á 18. öldinni, máske útlend að uppruna. Bryggja
er yfir rist, h. 12 sm., og typpi upp úr í gegnum hana;
er það með gati, sem í hefir verið svift fyrir ístaðsólina,
br. 1,3 sm. Beygjan er mestpart sívöl en 5 sm. breiðir
og 5,7 sm. langir spaðar eru neðst, og er skónum fest
á milli þeirra. Hann er nær kringlóttur, nokkuð fer-
hyrndur, og miðband yfir, á milli spaðanna, og er um
9 sm. á hvorn veginn. Sbr. nr. 3469, 4592 o. fl.
Sami: Hamarshaus úr steini; þ. e. lábarinn grásteinn,
nær kringlóttur, þverm. 9,7 — 10,5 sm., þ. 3,4 sm., með
kringlóttu gati, vídd 2,5 sm. Á hann eru annars vegar
markaðir stafirnir E I S A, þ. e. upphafsstafir eigandans
og »á«. Líklega frá 17. öld.
Bogi Thorarensen Melsteð, sagnfræðingur í Kaupmanna-
höfn: Kjóll, sem átt hefir móðurfaðir gef., Bjarni amtm.
Thorarensen, og mun vera af amtmannsbúningi hans.
Hann er úr dökkbláu klæði, fóðraður í ermum og baki