Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Qupperneq 81
81
6747.
6748.
674'.).
6750.
6751.
6752.
6753.
eru það mannshöfuð 2 skegglaus og með hár ofan á
háls; en fyrir neðan hausana eru köntótt typpi með
svörtum og rauðum lit. Er mjög líkt verk á báðum
þessum myndum og eru þær sýnilega af sama hlut
(prédikunarstól?) og eftir sama mann. íslenzkar og
líklega frá því um 1700. L. 15,5 sm.
'8/ti Ðúkur úr hvítu lérefti með miklum útsaumi innan við
jaðrana og upphafsstöfum á miðju dregnum rétt og öf-
ugt, torlæsilegum (G I D?). Umhverfis jaðrana eru
kniplingar mjóir og smágerðir. Fóðraður með hvítu
lérefti. Ferhyrndur, ca. 50 X 51 sm. að stærð. Senni-
lega frá 18. öld. Virðist of stór til þess að hafa verið
patínudúkur og ekki líklegur til að hafa verið kaleiks-
klútur, til þess að þerra með kaleikinn. Liklega hefir
hann verið notaður svo sem korpóraldúkur og verið
kallaður svo.
— Ljósberi úr látúni, kringlóttur, 22 sm. að þverm., um
36,5 sm. að hæð auk fóta (ca. 4 sm.) og kúlu og höldu
(hring, þverm. 8,8 sm.) upp úr. I neðri hlutanum eru
16 hornrúður í 2 röðum umhverfis, st. um 8X6,5 sm.,
en efri hlutinn er úr látúni, hvelfdur og allur gagn-
skorinn. Er ágætt verk á þessu, útlent og líklega frá
miðri 17. öld. Mjög svipaður látúns-ljósbera þeim, sem
sýndur er á 132. mynd í bók Fr B. Wallems, Lys og
lysstel, bls. 38. — Þrjár af rúðunum eru úr.
— Graduale, ed. XIV, Hólum 1747. í alskinnsbandi með
þryktu verki og leifum af látúnsspenslum. — Vantar
eiðinn aftan af.
— Graduale, ed. XV., Hólum 1749. í alskinnsbandi. Vant-
ar eiðinn.
— Graduale, brot af Hólaútg. Vantar titilblað og alt fyr-
ir aftan bls. 250. í alskinnsbandi.
Dominicale, prentað í Skálholti 1686; 1. örkin skrifuð.
Bundið í alskinnsband með pressuðu verki og leifum af
látúnsspenslum á.
Allir þessir gripir eru frá Háls-kirkju í Fnjóskadal,
nr. 6743—52.
23/n Kaffikanna úr eiri, sporöskjulöguð, þverm. 14,2—16 sm.
um bumbuna, en 11,7—13 sm. um botninn; hæð með
loki, sem er dálítið hvelft, 14,8 sm. Stútur fram úr og
handarhald aftur úr; typpi hefir verið á lokinu, en er
11