Eimreiðin - 01.07.1918, Blaðsíða 20
[Eimreiðin
Sýnir Odds biskups.
Eftir Jón Trausta.
I.
„Nei, þaí er ekki alls kostar rétt, drengur minn. Menn eru
ekki með öllu ofurseldir forlögum sínum, þótt þau séu fyrir-
fram ákveðin. Að vísu standa forlög hvers manns skráð í
stjörnunum og vísir menn geta lesið þau þar, svo að jafnvel
litlu eða engu skeiki. En einnig gangur stjarnanna er í guðs
hendi. Þú kannast við spakmælið rómverska: Astra reg-
una homines, regit astraDeus. Guð einn getur
breytt gangi himintunglanna og með þeim forlögum mann-
anna. Þess vegna eigum vér að kappkosta, að lifa svo honum
líki, og þess vegna eigum vér að snúa oss til hans með
bæn og ákalli, ef vér viljum komast hjá örlögum vorum.“
Oddur biskup Einarsson var allra manna hæstur vexti.
Sveinninn, sem hjá honum stóð og hlýddi á orð hans, var nærri
því fullvaxta maður og hinn mannvænlegasti, en hann náði
þó biskupinum ekki nema í öxl. Biskup leit niður á hann,
þegar hann mælti við hann — eins og hann raunar leit niður
á alla menn aðra á landinu, þá er hann hafði haft kynni af,
að Ara Magnússyni x Ögri einum undanteknum.
Þeir töluðust við í kór dómkirkjunnar x Skálholti, þeirrar
er Ögmundur biskup Pálsson hafði reisa látið, eftir að kirkjan
brann 1525. Glergluggarnir voru stærstir í kórnum og urðu
því að bestum notum, er skoða skyldi stjörnuhimininn. Þetta
var á Öskudaginn 1602. Að vísu var sá siður niður lagður,
að sá ösku í höfuð fólksins í kirkjunni, en samt var dagurinn
enn þá haldinn helgur að nokkru leyti. Guðsþjónusta hafði
farið þar fram þennan dag og hafði biskup sjálfur stigið í
stólinn, eins og hann var vanur að gera á öllum bænadögum