Eimreiðin - 01.07.1918, Blaðsíða 17
Eimreiðin] TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR
145
er auðvitað hreinn og beinn galdur, töfrar, og má sjá á
þessu að það hefir haldist við með þjóðinni alla tið, jafn-
hhða Jahve-trúnni og í forboði hennar.
Svo á herleiðingartímanum, þegar þjóðin var öll austur
í Babýlon, og múrinn mikli var niðurrifinn, svo að þeir
gátu ekki stíað sér frá öðrum, þá heldur töfratrú Kalde-
anna innreið sína hjá þeim. Er það einkennilegt, að það
fer saman, sem þó sýnist einmitt vinna hvað á móti
öðru, að eingyðistrúin festist hjá þjóðinni, og að töfr-
arnir ná valdi sínu. En þetta gat orðið með þeim hætti,
að hugmyndir Babyloníumanna um illa anda komust að.
Guð var að vísu einn, en það mátti finna ýmislegt til þess
að samrýma hina nýju djöflafræði Jahve-trúnni. Djöfull-
inn verður nú sá, sem alt ilt hefir gert, alt frá falli vorra
fyrstu foreldra og það fram á þenna dag. Hugmyndin um
djöfulinn er sem sé alls ekki jafngömul Jahve-trúnni,
heldur er hún aðkomin löngu seinna. Ein frásaga varð
líka sérstaklega handhæg í þessu sambandi. pað eru þessi
orð í 1. Mós. 6, 1—4: „En er mennirnir tóku að fjölga
á jörðunni, og þeim fæddust dætur, sáu synir Guðs, að
dætur mannanna voru fríðar, og tóku sér konur meðal
þeirra, allar sem þeim geðjuðust .... Á þeim tíma voru
risar á jörðunni, og einnig siðar, en synir Guðs höfðu sam-
farir við dætur mannanna, og fæddu þeim sonu; það eru
kapparnir, sem í fyrndinni voru víðfrægir.“
Hér fundu guðfræðingar Gyðinganna átyllu til þess,
að skjóta inn djöflafræði Kaldeanna, án þess að skerða
vald guðs. „Synir guðs“ voru englar, sem höfðu getið
böm við menskum konum. Við það útskúfaði guð þeim,
og urðu þeir þá að púkum, og afkvæmi þeirra varð púkar.
Foringi þeirra var svo Satan sjálfur. pannig myndast
ríki hins illa. Og galdratrúin blómgast og dafnar í gyð-
ingdómnum upp frá þessu og fær hinar stórkostlegustu
afleiðingar fyrir töfratrúna. Alþýðu-hjátrúin nærðist á
þessum hugmyndum, sem kunnastar voru, en fyrir vís-
indalegu töfrana á miðöldunum fékk Kabbala, leyndu
vísindin. sem Gyðingarnir framleiddu, stórmikla þýðingu.
---------- 10