Eimreiðin - 01.07.1918, Blaðsíða 87
EimreiBin]
FERÐ í ÞÓRISDAL
215
er enginn dalur, heldur upplíðandi þengsl. Eftir að hafa
athugað þetta, sneri eg aftur. Náði eg til félaga minna
snemma um kvöldið, sátu þeir þá allir inni í öðru tjaldinu
og skemtu sér við te og heitar pönnukökur.
Daginn eftir gengum við um Kaldadal til Húsafells, en
sendum Halldór með hesta og farangur til pingvalla.
Yið vorum einn dag um kyrt á Húsafelli í besta yfirlæti.
Á öðrum degi héldum við þaðan ríðandi upp á Kaldadal.
í för með okkur var Jalcob Guðmundsson, vinnumaður á
Húsafelli, glöggur maður og skemtilegur. þar sem Kaldi-
dalur er hæstur, snerum við af veginum og stefndum inn
að jökli. p’eim til skýringar sem ekki hafa farið um Kalda-
dal, skal eg segja litið eitt frá staðháttum. Kaldidalur hgg-
ur nærfelt í útsuður og landnorður milli Oks og Lang-
jökuls. Er það hár hryggur af möl og sandi, stórgrýttur
víða. Á móts við miðjan Kaldadal gengur vik eitt eða
skarð í jökulinn. þar er það sem jökullinn skerst í sund-
ur, eins og áður er skýrt frá. Úr skarði þessu fellur Geitá
í mörgum hvíslum fram með Hádegisfelli. Frá skarðinu
ganga eyrar fram með jökhnum og mynda griðarstóra,
þríhyrnda sandsléttu, sem takmarkast af hömrum eða
klettabelti við Kaldadal. Eftir söndunum renna ótal ár og
lækir er úr jöklunum koma. Safnast mest alt vatnið sam-
an við klettabeltið og myndar þar breiða á, er rennur til
norðurs og sameinast Geitá.
"Yið stigum af hestunum við hamrana. Okkur leitst
heldur illa á færðina, en inn í milli jöklanna ætluðum við
að komast og sjá hvernig þar væri umhorfs. Við vorum
flestir orðnir heldur lélega skóaðir og var því ákveðið að
tveir skyldu fara, er besta hefðu skóna, en það voru við
Tryggvi. Hinir áttu að bíða okkar á meðan. Við tókum af
okkur malinn en höfðum myndavélarnar með okkur og
leituðum síðan niðurgöngu í hamrana. Fyrir neðan var
snjófönn óshtin með öllu hamrabeltinu. Við komumst
klaklaust ofan á sandana og óðum yfir ána. Var sandur-
inn svo gljúpur framan til að við sukkum víða í hann
upp undir kné. Við gengum eins létt og við gátum og fór-