Eimreiðin - 01.07.1918, Page 90
[EimreiOin
Hvað væn sveitakirkja kostaði á 17. öld.
A. M. 262, 4to, bls. 35—37.
Anno 1604 þann 3. dag hvítasunnu í Hjarðarholti virtur
kirkjunnar viður og prestsins kostnaður fyrir viðina og kirkj-
unnar byggingarkostnaður.
I fyrstu 90 borð keypt í Kumbaravogi fyrir 11 vættir og 2
fjórðunga. Item 3 syllar, þrettán álna hver, keyptar fyrir 3
sauði gamla. Nú voru 8 borð dregin á hesti frá Kumbaravogi
og heim, svo alls urðu 11 hestar klyfjaðir. Þá reiknast fyrir
ábyrgð og kostnað til þessa heimflutnings 20 álnir eftir hvern
hest fyrir 1 hdr. og 10 tíu álnir. Item syllar fluttar úr Hrúta-
firði reiknast sá kostnaður 20 álnir og voru fluttar á 2 hestum.
Item 10 stöplar kirkjunnar keyptir í Steingrímisfirði og Hrúta-
firði. Reiknuðum vér verð og kostnað fyrir áttatíu álnir ann-
ars hundraðs. Item 2 bjálkar 8 álna langir af sjálfrar kirkj-
unnar viðreka fyrir 20 álnir. Summa alls fyrir við og viða
kostnað 6/2 hdr. og 40 álnir betur. Item 2 glergluggar fyrir
40 álnir. Item reiknast veggjasmíði á nýjum moldum kirkjunn-
ar og allur sá kostnaður fyrir //2 hdr. Þar fyrir er hver hlið-
veggur 6 málfaðmar. Þar fyrir reiknast allur kostnaður á hverj-
um þrem föðmum 1 hdr. og gaflveggurinn i/2 hdr. Svo er
veggjarsmíðið alt // hdr. og er nú alls summan á þessu 12 hdr.
og 40 álnir betur. Item smíðið á kirkjunni sjálfri og að þekja
kirkjuna reiknast 40 álnir hins þriðja hundraðs fyrir mötu
og kaup smiðum og haldsmönnum. Item þakið að rista og
hafa heim reiknast kostnaðurinn 60 álnir fyrir menn og hesta.
Item að byggja innan kirkjuna, fyrst gaf presturinn smiðnum
6 fjórðunga smjörs, að þilja kórinn og prédikunarstólinn og
að búa kórinn að öllu með sætum og gólfi og 5 aura matar-
verð fyrir 2 menn. Item að þilja framkirkjuna reiknaðist 2
smiðum á hálfum mánuði 40 álnir í matarverð og aðrar 40
álnir í kaupið. Summa alls 16/ hdr.
G. J.