Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 59
Síra Ólafur Gíslason
59
höfuðból eða aðra merka íslenska staði, þá hefur
þessi ritsmíð náð tilgangi sínum.
Sigfús Blöndal.
Lýsing1 á Pingeyraklaustri.
Nú vil jeg ekki láta það hjá farast, að minnast þess,
hvernig umhorfs var í Pingeyraklaustri þau fimm ár, er jeg
ólst þar upp.
I. Um húsaskipun á staðnum. Inngangur staðarins
var með dönsku byggingarlagi, hlið nær því þriggja
faðma á breidd, og svo hátt, að ríðandi maður gat rjett
að eins seilst með svipu yfir bitann, sem lá á tveimur
sterkum dyrastólpum. Á báðar hliðar stólpunum voru
festar við þá tvennar vængjahurðir, með þremur járn-
hjörum, og voru þær opnar allan þann tíma, er ekki
þurfti snjóva að vænta. Milli þessara tveggja vængja-
hurða voru einar dyr minni, en þó svo stórar, að meðal-
stór vagn gat farið þar í gegn, og má þó vera, að öku-
maður hafi orðið að beygja sig lítið eitt, það man jeg
ekki með vísu. Hægra megin við hliðið, rjett við hlið-
stólpann, var mjölskemma, var þar geymt niðri mjöl og
korn handa staðarfólkinu, en uppi á lofti margra hundr-
aða virði af skreið. Við skemmuna var áfast lítið hús,
fyrir hæns, endur, gæsir o. s. frv. Útveggirnir á þessum
tveimur húsum voru úr torfi; þau sneru bæði móti suðri.
Á austurhliðinni var því næst timburhús með norsku
sniði, um það bil 21—24 álna langt, en rúmlega 7—8
álna breitt, og var því fyrir komið sem nú skal greint.
Norðan til í garðinum var lítil forstofa, með fjórum horn-
um og uppdregin1); má enn sjá samskonar forstofur sum-
l) »smal oventil«.