Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 29
Arminius Vambéry
29
ætluðu þeir beint austur til heimkynna sinna í Kasgar.
Munkarnir höfðu reynst Vambéry ágætlega og voru
mjög elskir að honum; var skilnaðurinn þungur með
miklum andvörpum og táraflóði.
Frá Samarkand fór Vambéry með nokkrum píia-
grímum, sem ætluðu til Mekka, beint suður til bæjar,
sem heitir Kerki, við Amú darja. Far ætlaði hann að
slást í för með stórri kaupmannalest, sem ætlaði suður
yfir fjöll til bæjarins Herat í Afganistan. I Buchara og
Samarkand hafði alþýða verið mjög nízk á ölmusur við
þá förumunka, svo fje þeirra var farið að ganga til þurð-
ar, og lítil von á inntektum í þeim löndum, sem Vam-
béry ætlaði að fara yfir; keypti hann sjer þá ýmsan
smávarning, nálar, hnífa, fingurbjargir, kóralla og ýn,is-
legt glingur, til þess, eins og aðrir stjettarbræður hans,
að hafa ofan af fyrir sjer með því að selja það á suður-
leiðinni. Kaupmannalestin, sem Vambéry komst í hjá
Kerki, var allstór; þar voru 400 úlfaldar með klyfjum
og margir hestar og asnar; ætluðu kaupmenn þessir með
verzlunarvörur sínar suður til Afganistan, en ferðin gekk
æði skrykkjótt og með miklum töfum, því leið þeirra lá
um ýms smá ræningjaríki, og voru alstaðar heimtaðir toll-
ar, svo lestamenn urðu, þrátt fyrir allar harmatölur, að
láta af hendi mikið fje; með lestinni voru margir pers-
neskir þrælar, sem leystir höfðu verið eða flúið, og varð
að borga toll af þeim eins og búfje; þar voru líka nokkr-
ir rússneskir flóttamenn úr Síberíu, og varð Vambéry að
votta, að þeir væru Tyrkir, annars hefði þeim eigi verið
slept yfir landamærin og líklega drepnir eða seldir.
Eftir langa og örðuga ferð komust þeir loks suður til
Herat, og var Vambéry þá orðinn svo snauður, að hann
varð að selja asnann sinn sjer til viðurlífis. Herat var til
forna mikill bær og blómlegur, en nú er hann ekki nema
svipur hjá sjón; hafa Persar og Afganar og aðrir sífelt