Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 122
122
Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahötn
er list, einskonar skáldskapur. Hitt, sem því ræöur, aö
»Endurminningar« Páls Melsteðs þykja oss svo dýrmæt-
ar, er þaö, að þar birtist mynd eins af allra bestu mönn-
um þjóðar vorrar, án þess að nokkuð sie skekt, að vorri
þekking nákvæmlega eins og maðurinn var í reyndinni.«
Dr. síra Jón Bjarnason, Sameiningin 27. árg., bls. 316.
BrjefPálsMelsteðs til Jóns Sigurðsson-
ar. 2,00.
»Bessi brjef eru engu síður fróðleg og skemtileg en
Endurminningarnar, og þurfa hinir mörgu vinir Páls jafnt
að eignast bæði ritin. Og enn betur skína mannkostir
Páls út úr brjefunum.« Biskupinn, Nýtt kirkjublað.
Píslarsaga síra Jóns Magnússonar, um
galdramál, með inngangi eftir Sigfús Blöndal. 1. h. 1,50;
2. h. 2,00; 3. h. 1,50. Öll heftin 5,00. »Bókin er dýrmæt
heimild að menningarsögu okkar.« N. í Isafold.
Jarðabók Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns, 1. b., 1.—4. h., bókhlöðuverð 2,25 hvert
hefti, verð fyrir kaupendur að allri Jarðabókinni 1,50
hvert hefti. Jarðabókin er prentuð á sterkari pappír, en
nokkur önnur íslensk bók nú á tímum. Bókhlöðuverð er
45 aura örkin, en áskrifendaverð 30 aura. Jarðabók þessi
er mjög fróðleg um margt, og hið langbesta heimildarrit,
sem til er, um hag bænda og búnaðarástandið á Islandi
á síðari hluta 17. aldar og í byrjun 18. aldar. í henni eru
nafngreindir allir ábúendur og jarðeigendur.
Ferðabók eftir Þorvald Thoroddsen, hin
mesta og fróðlegasta ferðabók, sem út hefur kornið um
ísland. 1. b. 6,00; 2. b. 5,00; 3. b. 6,00; 4. b. 6,00. Öll
bókin 23 kr. Einstök bindi fást eigi sem stendur hjá
Fræðafjelaginu; að eins nokkur eintök óseld; upplagið
var 470 eintök.
Orðakver einkum til leiðbeiningar um
rjettritun eftir Finn Jónsson, innb. 0,75. Besta