Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Side 5
Arminius Vambéry
5
Evrópu, þegar róstur eru; hús þeirra voru brotin og
rænd, þeim sjálfum misþyrmt og sumir drepnir. Fjöldi
manna varð atvinnulaus og eignalaus og alt var í upp-
námi. Austurríkismenn sigruðu Ungara með aðstoð
Rússa, og uppreisnarandinn var bældur niður með misk-
unarlausri harðneskju. Allir foringjar uppreisnarmanna,
sem náðust, voru líflátnir, og sumir voru teknir af lífi
fyrir lítilsháttar grun um frjálslyndar skoðanir, þjóðlegan
hugsunarhátt eða mótþróa við stjórnina. Vambéry, sem
þá var drengur á 16. ári, var viðstaddur aftöku margra
manna, en sjerstaklega varð honum mikið um að horfa
upp á líflát prests nokkurs, er hjet Razga; hann var
Lútherstrúar og hafði á prjedikunarstólnum mælt fram
með þjóðerniskröfum Ungara; prestur þessi var hengdur
á torgi í Pressburg í viðurvist konu sinnar og barna og
mikils mannfjölda. Skólanámi Vambérys var nú lokið
um stund, og varð hann mjög feginn, þegar hann komst
úr bænum langt upp í sveit sem heimiliskennari hjá fá-
tækum Gyðingi í þorpi uppi í Karpatafjöllum, og var
hann rúmt ár á þessum stað.
Pegar friður var kominn, fór Vambéry aftur til Press-
burg og fekk inntöku í efsta bekk í þýzkum latínuskóla
þaríbæ; gekk honum námið ágætlega, eins og vant var,
þegar ha-nn gat sinnt því vegna fátæktar; lauk því svo,
að Vambéry varð að hætta rjett á undan burtfararprófi,
af því honum var ómögulegt að afla sjer þeirra 30 króna,
sem prófskírteinið kostaði. Pað hafði verið ætlun Vam-
bérys og hugsjón móður hans, að hann að afloknu skóla-
námi stundaði læknisfræði við einhvern háskólann, en nú
brugðust þær vonir gjörsamlega fyrir fátæktar sakir. Vam-
béry hafði líka nú orðið miklu meiri hug á tungumálanámi
en á læknisfræði. Vambéry stóð enn þá einu sinni uppi
með tvær hendur tómar, og varð að hætta allri hugsun
um framhald á skólanámi; 10 vetra hafði hann byrjað