Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 22
22
í’orv. Thoroddsen
hestur þeirra alt í einu fældist villigrísi, er þutu út úr
kjarri eipu. feir Vambéry og fjelagi hans duttu af bakii
ofan á grísina, en í sama vetfangi rjeðist villigöltur mikilL
á þá; annar fjelagi þeirra kom mátulega þeim til hjálpar,
ríðandi, með spjót í hendi, og stangaði göltinn, og töldu
bræður Vambérys það mikið lán, að gölturinn ekki drap hann,.
því svín eru mjög óhrein dýr í augum þeirra, og ef sann-
trúaður Múhamedsmaður verður fyrir því óláni, að bíða
bana af völdum villisvíns, fer hann svo óhreinn í annam
heim, að jafnvel 500 ára vera í hreinsunareldi mundi eigi
hreinsa hann fullkomlega.
Hinn 13. maí 1863 var lestin öll komin saman til að'
leggja út á eyðimörkina; voru þar saman komnir 80 úlf-
aldar og 40 ferðamenn, voru 14 þeirra vel vopnaðir, en.
26 voru vopnlausir förumunkar, og urðu menn að fara.
varlega og halda njósnum fyrir um stigamenn af öðrum
ættum, sem verið gátu á leiðinni, en friðarmál höfðu þá.
nýlega farið milli nábúaflokkanna, svo hættan var því
minni; þó var aldrei að vita, hvað fyrir kynni að koma.
Var nú lesin ferðamannabæn og blessunarorðin (fatiha).
sungin; eftir amen struku allir skegg sitt sem venja er
til, og svo var haldið á stað. Lestarforinginn tók Vam-
béry vinsamlega í fyrstu, en var síðan þurr við hann og
undinn og að lokum fjandsamlegur og hótaði jafnvel að'
skilja hann eftir á eyðimörkinni. Afgani einn, sem var
í ferðinni og hafði flúið úr föðurlandi sínu fyrir glæpi,
var kunnugur í Kandahar og öðrum takmarkabæjum Ind-
lands; hafði hann sjeð þar Englendinga og hjelt því nú,
fram við lestarforingjann, að Vambéry væri Englendingur
í dularklæðum. Vambéry bar það af sjer með mesta á-
kafa, og allir munkarnir vitnuðu, að hann væri Tyrki frá
Stambul, og lá við sjálft, að Afgananum væri misþyrmt
fyrir róginn. Til hægðar á eyðimörkinni hafði Vambéry
og Bilal munkaforingi leigt úlfalda með tveim laupum og;